Home Blog Page 66

ÞETTA VAR BANAMEIN PLAY

0
„Fyrir ekki löngu síðan sögðu fulltrúar Play flugfélagsins frá gangi mála á Rotary-fundi. Ég spurði hvaða mistök Wow Play ætli ekki að endurtaka. “Að vaxa of hratt” var svarið og það hitti í mark,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankstjóri og heldur svo áfram greiningu sinni á falli Play flugfélagsins:
„Forstjórar verða að þekkja muninn á alvöru vexti og skaðlegri þenslu. Alla aukningu þarf að skoða svona: Vöxtur uppfyllir ávöxtunarkröfu markaðarins, ásamt áhættuálagi greinarinnar, á það eigið fé sem aukningin bindur. Aukning sem nær þessu ekki er bara þensla.
Áráttan um stærð á sér rætur í því að hún er svo sýnileg. Velta, fjöldi flugvéla og áfangastaða sést betur en afkoma. Fjölmiðlar ýta undir hégómaskapinn með umfjöllun sinni. Þetta vandamál hefur orðið mörgum forstjóranum að falli. Þetta var banamein Wow og nú Play.“

KRISTRÚN TALAR AMERÍSKU

0
Egill enski skrifar:
Amerískur hreimur er mjög áberandi þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mælir á enska tungu. Að mörgu leyti skiljanlegt, hún var í hagfræðinámi í Boston í fjögur ár, lauk mastersnámi við Yale háskóla 2016.
Aftur á móti er það frekar algengt meðal Íslendinga sem dvalið hafa í Bandaríkjunum, að ameríski hreimurinn hverfur smám saman og framburðu á ensku verður frekar hlutlaus. Ameríska nasahljóðið þykir enda ekkert sérstaklega fallegt. Kristrún rúllar semsé errinu upp með tungunni, dregur sérhljóðana ýmist sundur eða saman og ber t fram mjúkt eins og venja er vestan hafs.
Orðaforði Kristrúnar er samt mikið afbragð og hvað sem líður þoli fyrir amerískum framburði hjá öðrum en ameríkönum, þá er hún óneitanlega áheyrilegri en aðrir íslenskir ráðamenn þegar þeir þurfa að tala ensku.

HULDA HÁKON OG ÍSBIRNIRNIR Á KONTÓR

0

Hulda Hákon opnar sýningu í dag helgaða ísbjörnum, örnefnum í hafinu og ströndum Austurlands í sýningarsalnum Kontór á Hverfisgötu.

Bergsveinn Birgisson rithöfundur hefur þetta að segja um þessa, að margra mati, merkustu listakonu Íslands:

„…dýr og menn leita útávið í lágmyndum hennar líkt og þau vilji koma til okkar, tengjast okkur, þau eru á leið út úr verkum hennar og inn á gólf til okkar. Inndregnu lágmyndirnar, forn-egypsk tækni sem þessi íslenska listakona virðist nokkuð ein um að hafa náð fullkomnu valdi á.“

STEFÁN MEÐ KÓNGINUM Í BELGÍU

0

Stefán Haukur Jóhannesson sem tók við stöðu sendiherra Íslands í Brussel í byrjun ágúst, afhenti Philippe konungi Belgíu trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 24. september. Með sendiherra í för voru þrír starfsmenn sendiráðsins.

…OG SVO KOM HEYRÚLLAN

0

„Hér er sjón sem maður sá aðeins í gamla daga eða fyrir svona tveimur, þremur áratugum síðan er íslenskir bændur liðinnar tíðar voru að flytja bagga eða hey á vagni eða vörubílum,“ segir Guðbjartur Walter H. Ólafsson:

„Áður fyrr var talað um að fólk í sveit ætti að kunna að gera baggahnúta sem ég held að sé að mestu liðin tíð og nú í dag sjáum við bara heyrúllur til borgar og sveita.“

L’AMOUR

0

Svala Björgvins hefur birt nýja mynd af sér eftir Sögu Sig sem hún nefnir L’amour.

GUNNAR ÁNÆGÐUR MEÐ SPEGIL ÞJÓÐAR

0

Gunnar V. Andrésson flinkasti fréttaljósmyndari sinnar samtíðar er ánægður með myndabókina sem út er komin með úrvali verka hans og texta í stíl eftir gamlan vinnufélaga hans, Sigmund Erni Rúnarsson nú alþingismann.

Fréttamyndir GVA, en þannig merkti hann myndir sínar, voru teknar af svo mikilli tilfinningu fyrir augnablikinu að fréttirnar sem fylgdu skifuðu sig svo gott sem sjálfar. Hæfileikar GVA á þessu sviði eru vandfundir í sporgögumönnum hans í fréttaljósmyndun.

Spegill þjóðar heitir bókin of ber nafn með rentu.

MEAT LOAF (78)

0

Stórstjarnan Meat Loaf (1947-2022) er afmælisbarn helgarinnar. Stór í sniðum hvort sem var tónlist, svið eða kvikmyndir enda fæddur í Texas þar sem allt er stórt. Hann seldi Bat Out of Hell í 100 milljónum eintaka. Eftirköst af covid lögðu hann að velli 74 ára gamlan.

STEINA FIÐLULEIKARI SEM VARÐ VIDEÓFRAMKVÖÐULL Á HEIMSVÍSU – SÝNIR Í REYKJAVÍK

0

Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur kynna með stolti fyrstu stóru yfirlitssýningu á Íslandi með verkum Steinu (fædd Steinunn Briem Bjarnadóttir), sem er einn helsti frumkvöðull vídeólistar og nýmiðlunar í heiminum. Steina hefur um áratugaskeið verið brautryðjandi og áhrifamikil í þróun samtímalistar og hefur með verkum sínum tengt saman vídeólist, tónlist og tækni á einstakan og skapandi hátt.

Steina hóf listferil sinn sem fiðluleikari í Reykjavík og Prag áður en hún flutti til New York árið 1965 með eiginmanni sínum, Woody Vasulka. Árið 1971 stofnuðu þau The Kitchen, goðsagnakenndan vettvang fyrir tilraunakennda tónlistar- og myndbandslist í New York. Frá þeim tíma hefur Steina sýnt víða um heim og verk hennar eru talin lykilverk í sögu vídeólistar.

Sýningin, sem ber heitið Tímaflakk/Playback, verður opnuð 4. október 2025 í báðum söfnum og stendur til 11. janúar 2026. Hún spannar allan listrænan feril Steinu, frá fyrstu verkum til nýrra, og gefur einstaka innsýn í þróun bæði listar og tækni undanfarna áratugi.

LOGANDI BÍLL

0

Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins:

Síðastsliðinn sólarhring voru dælubílar okkar boðaðir út 7 sinnum, meðal annars í eld í bíl sem greiðlega gekk að slökkva.