Home Blog Page 65

NETGÍRÓ RUKKAR FYRIR ÓFARNA FERÐ MEÐ PLAY

0

„Í september keypti ég gjafabréf í gegnum Netgíró til að nota hjá Play. Gjafabréfið keypti ég á heimasíðu Netgíró. Ferð var bókuð frá Íslandi 2. október og tilbaka 6. október,“ segir Þorvaldur Steinþórson kaupmaður í Adam & Evu og hefði kannski betur láið þetta ógert:

„Samkvæmt svörum Netgíró mun krafan á mig verða innheimt, ég stórlega efast um að Netgíró hafi verið búin að gera upp greiðsluna við Play, þar sem venjulegir uppgjörsskilmálar þeirra eru þrjár vikur allavega.

Tólfta september var bréfið keypt, síðan þá eru tvær og hálf  vika svo að Netgíró er að hagnast á falli Play. Rukkar mig um bréfið en skamkvæmt almennum skilmálum við söluaðila, þá gera þeir ekki svo fljótt upp. Play fékk ekki greitt frá Netgíró og en ég á að borga Netgíró.“

EKKERT LJÓS EÐA NET Í LANDSBYGGÐARSTRÆTÓ

0

Borist hefur póstur:

Ég fer stundum með strætó frá Reykjavík til Akureyrar  að kvöldlagi og virðist lítill áhugi á að gera ferðina bærilega fyrir þá sem vilja lesa eða fara á netið. Hvorki eru ljós í bílunum né internet þrátt fyrir auglýsingar um annað. Geta má þess að leiðin er ríkisstyrkt en Vegagerðin annast aksturinn en fól hann Strætó skv. útboði, sem fól hann undirverktaka sem sennilega fól hann fyrirtækinu sem á rútuna. Þannig er nú millliðaverndin á Íslandi. Sem sagt, fjögur núll!

TÆKNI UPP Á TÍU HJÁ EYJÓLFI

0

Sjónvarpsáhorfandi skrifar:

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra er með sjónvarpstæknina upp á tíu eins og sást í fréttum á Rúv um fall Play. Þar var hann í beinni útsendingu frá ráðherraskrifstofunni, sem sagt ekki með tökumann frá fréttastofunni. Hljóð og mynd voru hins vegar til fyrirmyndar og ljóst að ráðherrann er með flinka ráðgjafa í þessum efnum.
Síma var stillt upp á þrífót til að taka myndina og þráðlaus míkrófónn tengdur við hann til að tryggja gott hljóð. Eyjólfur var síðan með eyrnatappa við símann til að heyra í fréttamanninum.
Þetta mega aðrir ráðamenn taka sér til fyrirmyndar. Æ algengara er að þeir eigi samskipti við sjónvarpsstöðvar í gegnum eigin síma eða fartölvur, oft erlendis frá. Versta útkoman er einatt gegnum fartölvurnar, þar eru myndgæði verri en í símum og mjög asnalegt þegar myndavél fartölvunnar dregur aðallega fram undirhöku viðmælandans.

JULIE ANDREWS (90)

0

Julie Andrews heldur upp á níræðisafmæli sitt á morgun. Svona munum við hana:

ÓÞARFI AÐ TALA SAMAN

0

Algjör óþarfi að tala saman – úr seríunni símalíf eftir Ara Sigvaldason.

ENGIN SAGA ÞOLIR AÐ ALLT SÉ SAGT

0

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og kornkynbótamaður á eftirlaunum er besta skáldið á samfélagsmiðlum samtímans:

höfundur
sagðrar sögu
ritaðrar sögu
verður að geta sýnt
að hann viti meira en hann segir
hann skal
þreifa á yfirborðinu
kumpánlega
þið vitiið þetta
ég þarf ekki
að segja ykkur það
því að engin saga þolir
að allt sé sagt
uppfylling og ímyndun
er kryddið sem allt veltur á
enda ljóstrar meistari Halldór
upp leyndarmáli sínu
í minningabókinni Úngur ég var:
„vandinn að skrifa er í því fólginn að þegja yfir nógu mörgu“
(bls. 93)

ENDURTEKIÐ EFNI

0

„Endurtekið efni“ heitir þessi mynd Ingva Más Sigríðarsonar.

Sjá tengda frétt.

KRISTRÚN FÓR AÐ SJÁ EINAR ÁSKEL

0

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og eitt barna hennar voru meðal gesta á leiksýningunni „Einar Áskell – Engan asa“ í Hörpunni í hádeginu á sunnudag. Troðfullur salur á frábærri sýningu sem tók aðeins 45 mínútur – passlegur tími fyrir börn.

LEITIN AÐ FORMANNI FRAMSÓKNAR

0

Gamall og þaulreyndur Framsóknarmaður var beðinn um álit á leitinni að nýjum formanni flokksins þegar nokkuð ljóst er að Sigurður Ingi taki ekki slaginn á ný. Hér er skýrsla hans:

Trausti Hjálmarsson formaður bændasamtakanna. Á besta aldri og kann að koma fyrir sig orði. Með Trausta færi Framsókn aftur til upprunans, kjarnar sig. Þjappar saman þeim tugþúsundum um land allt sem átta sig að án öflugrar landsbyggðar er lítið varið í Ísland. Hirðir þjóðrembuna af Miðflokknum.

Undir sama merki mætti nefna Vigdísi Häsler, fyrrum framkvæmdastjóra bændasamtakanna. Eldklár, vel þekkt, tími til kominn á konu í forystu flokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Sameinar Framsókn og Miðflokkinn í sterka þjóðræknisfylkingu. Lofar að setja 100 milljarða á ári í úrbætur í vegakerfinu. Stöngin inn. Sá þriðjungur þjóðarinnar sem býr fyrir utan pípuhlið suðvesturhornsins þráir ekkert meira en bættar samgöngur.

Vigdís Hauksdóttir. Búin að hvíla sig nóg frá pólitíkinni, hefur róast í millitíðinni en á jafn auðvelt og áður með að hrífa fólk með sér, með munninn fyrir neðan nefið og mátulega létt í skapi.
Komast ekki á blað: Halla Hrund Logadóttir og Lilja Dögg Alferðsdóttir.
Þær hafa ekki „mojoið“.

ANITA EKBERG (94)

0

Fæðingardagur sænsku leikkonunnar Anitu Ekberg (1931-2015) sem hlaut heimsfrægð ung að árum sem Sylvia í Fellini kvikmyndinni La Dolce Vita. Sjarmi hennar og fegurð á hvíta tjaldinu var án hliðstæðu.