„Loft“ heitir þessi mynd og er úr seríunni „Það er nóg til“ eftir Ara Sigvaldason.
ÁTTRÆÐ LÍMONAÐIFLASKA Í ENDURVINNSLUNNI
Starfsfólk í flöskumóttöku Endurvinnslunnar er að koma sér upp minjasafni fyrir fágætar, gamlar flöskur sem rekur á fjörur þeirra. Hér er ein:
TOLLI (72)
Tolli Morthens er afmælisbarn dagsins (72). Þegar hann vaknaði í morgun varð honum að orði:
ALFREÐ SNERI Á ÞÁ ALLA MEÐ KLÓKINDUM
„Ljósmyndabók mín um Loftleiðir sem kom út í nóvember 2024 var ekki styrkt af opinberum aðilum á neinn hátt. Ekki var sótt um neina styrki við gerð hennar. Það er í anda Loftleiða að að vera frjáls og óháður,“ segir Sigurgeir Orri Sigurgeirsson og er stoltur af:
„Barátta Loftleiða drjúgan hluta af ævi fyrirtækisins var við ríkisstyrkt fyrirtæki á borð við SAS, Lufthansa, BOAC (fyrirrennara British Airways) og Flugfélag Íslands. Þar að auki stóð fyrirtækið í stöðugu stappi við einokunarhring ríkisflugfélaga Evrópu IATA. Og eins og þeir vita sem þekkja söguna tókst Alfreð Elíassyni með klókindum að snúa á þá alla.“
SIF MEÐ HLAÐVARP
„Nú eruð þið hvergi óhult fyrir mér,“ segir pistahöfundurinn vinsæli, Sif Sigmarsdóttir, sem komin er með hlaðvarp:
„Sú gamla stígur loks inn í samtímann – pistlana má einnig hlusta á sem hlaðvarp á helstu streymisveitum.“
Sif hefur notið mikilla vinsælda með pistla sína á Vísi þar sem hún fjallar um mennskuna í ýmsum myndum. Næstu vikurnar mun Sif setja málefni líðandi stundar í samhengi á Vísi með því að raða þeim á lista og spyr:
„Ertu með Omaggio vasa á stofuskenknum og Iittala kertastjaka sófaborðinu? Keyptir þú þér húsbíl árið 2018? Keppnisreiðhjól og spandex árið 2019? Ertu með súrdeigsmóður í ísskápnum frá því í kóvid? Ertu að láta setja pott á pallinn?“
4.000 STÖRF Í LÍFVÍSINDUM
Lífvísindaiðnaður á Íslandi er farinn að taka á sig afgerandi mynd og með þróun á nýrri tækni innan lífvísinda eru nýir möguleikar að koma á sjónarsviðið. Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch segir að árlega myndi fyrirtæki í þessari grein umtalsverðar tekjur og skapi yfir fjögur þúsund sérfræðistörf.
Í heildina eru um 130 fyrirtæki í þessari grein og eru flest þeirra í Reykjavík og nágrenni. Þau mynda ásamt háskólunum, Landspítalanum og Vísindagörðum Háskóla Íslands óformlegan lífvísindaklasa. Alls eru yfir 4.000 störf í þessari grein.
Sandra Mjöll fjallar um Lífvísindaþorpið í Vatnsmýri á árlegum kynningarfundi borgarstjóra föstudaginn 10. október nk. Sandra Mjöll hefur kortlagt stöðu fyrirtækja í þessari grein fyrir Íslandsstofu og markaðsverkefnið Reykjavík Science City, með það að markmiði að kynna og auka sýnileika íslenskra lífvísinda erlendis.
STOLT OG ÞAKKLÁT
Inga Sæland félagsmálaráðherra heimsótti NPA miðstöðina í gær. Tilefnið var bæði kynning og fagnaður 7 ára afmælis lögfestingar NPA. Ingu var gefin sérhönnuð taska með tilvitnun úr ræðu hennar sem hún flutti hjá Sameinuðu þjóðunum: „Stolt, fötluð og óendanlega þakklát“.
–
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónusta sem gerir fötluðu fólki kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð. NPA styrkir rétt fatlaðra til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum, án óþarfa hindrana.
STING (74)
Tónlisarmaðurinn Sting er afmælisbarn dagsins (74). Hóf ferilinn sem bassaleikari, lagahöfundur og söngvari nýbylgjusveitarinnar Police og getur nú litið stoltur um öxl: 100 milljónir hljómplatna seldar.
GUÐJÓN AÐ GEFAST UPP Á FRÉTTUM RÍKISINS
„Það er eins og það eina sem þykir fréttnæmt í sjónvarpsfréttum RÚV séu neikvæðar fréttir. Það liggur við að maður nenni ekki lengur að horfa á alla þessa neikvæðni,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur eftir að hafa horft á sjónvarpsfréttir Ríkisins:
„Í gær (30. sept) samanstóðu fréttirnar t.d. af gjaldþroti Play, ástandinu á Caza, lögregluvernd fyrir son lögmanns, forvörnum gegn sjálfsvígum, stórslysi í Indónesíu. ungmennum sem takast á við krísuástand og mörgæsum sem bjargað var frá illu ástandi. Af hverju ekki að segja frá einhverju jákvæðu t.d. nýsköpunarfyrirtækjum sem fást við spennandi hluti, nýjum fyrirtækjum, félögum, stofnunum eða verslunum, ýmsum framförum um allt land, heimsfrægum listamönnum eða vísindamönnum sem heimsækja landið, útkomu nýrra bóka eftir fremstu rithöfunda okkar, tónlistarviðburðum, málverkasýningum o.s.frv. Þó að lífið sé ekki alltaf dans á rósum er það stundum dans á rósum.“
FRIÐARSÚLAN TENDRUÐ Í 19. SINN
Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 19. sinn, fimmtudaginn 9. október klukkan 20:00. Í eyjunni verður friðsæl athöfn með tónlistarflutningi Unu Torfadóttur og ávarpi borgarstjóra auk þess sem boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir. Ferðir út í Viðey eru í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono og hefjast frá Skarfabakka klukkan 17:30.


