Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, heldur upp á sextugsafmæli sitt á Catalínu í Kópavogi í dag.
„Það verða pulsur og nammi og iðandi spilirí. Allir velkomnir,“ segir afmælisbarnið.
Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, heldur upp á sextugsafmæli sitt á Catalínu í Kópavogi í dag.
„Það verða pulsur og nammi og iðandi spilirí. Allir velkomnir,“ segir afmælisbarnið.
Danska þjóðþingið verður sett í hádeginu í dag, 7. október. Hátíðlegt samkvæmt venju, guðsþjónusta í Slotskirken, kongungsfjölskyldan mætir, forsætisráðherrann heldur tölu og kosið verður í nefndir og ráð.
Þarna verða Friðrik konungur og Mary drottning. Margrét drottning og Benedikta systir hennar og prinsessa.
Við þingsetningu í fyrra var tekin upp sá siður að ljúka fundi með því að syngja danska þjóðsönginn,“ Det er et yndigt land“. Verður kór tónlistarskólans í Hvidovre þar fremstur og allir þingmenn syngja með – 179 talsins.
Sænska leikkonan Britt Ekland er afmælisbarn dagsins (83). Þekktust á árum áður fyrir að vera ein af fjórum eiginkonum gamanleikarans Peter Sellers og Bondstúlkan í The Man with the Golden Gun.
Allt stefnir í að sjónvarpsþáttaröðin Felix og Klara, samvinnuverkefni Jóns Gnarr og Ragnars Bragasonar, ætli að slá í gegn á landsvísu eftir fyrsta þáttinn sem sýndur var á RÚV í gær.
Upp úr stendur ótrúleg umbreyting á Jóni Gnarr í alhlutverkinu þar sem hann er sminkaður áratugi inn í framtíðina. Við tökur á þáttunum tók það sminkurnar fjóra klukkutíma að breyta Jóni í eldri borgara og aðra tvo að fjarlægja sminkið – fyrir og eftir hverja töku og þær voru margar.
Á sama tíma var Jón Gnarr í framboði til forseta Íslands og truflaði þetta umstang að sjálfsögðu kosningabaráttu hans því tíminn er takmarkaður. Hefði frumsýning þáttanna um Felix og Klöru verið skömmu fyrir forsetakosningarnar væri Jón Gnarr að öllum líkindum forseti Íslands í dag.
Pizza 67 sló rækilega í gegn á Íslandi fyrir síðustu aldamót en fjaraði einhvern veginn út. Hún lifir samt góðu lífi í Færeyjum með sama stæl og stíl og áður hér á landi.

Svín í sunnudagsgöngu á Möðrudalsöræfum í haustbirtunni. Hvað vakti fyrir því er ekki vitað en það gekk réttu megin á götunni – gegn umferð.
Airport Hotel Aurora á Keflavíkurflugvelli auglýsir íslenskt vatn fyrir gesti sína, beint úr goshvernum Geysi, gott til baða og drykkjar. Þá eru gestir hvattur til að endurnýta handklæði á herbergjum til bjargar hafi og ám.
Hugleikur Dagsson, beittasti blýanturinn í íslensku skopskúffunni, er afmælisbarn dagsins (48). Hann fær óskalagið Mind Games (Hugleikar):
Japanska sjónvarpsstöðin NHK World Japan er hætt útsendingum á Íslandi. Hægt var að fylgjast með stöðinni í sjónvarpi Símans en ekki lengur og sakna margir Einn áskrifandi Símans orðar það svo:
„Þetta er fræðandi og uppbyggjandi sjónvarpstöð sem veitir innsýn í japanska menningu og tæknilegar framfarir og daglegt líf Japana. Eitthvað sem Íslendingar ættu að taka sér til fyrirmyndar.“