Home Blog Page 62

BARNABARN MANDELA MEÐ MÖGGU STÍNU Í HALDI ÍSRAELA

0

Mandla Mandela, barnabarn Nelsons Mandela frelsishetju í Suður Afríku, var handtekinn af Ísraelsmönnum á leið til friðarstarfa á Gaza – líkt og Magga Stína.

Hér lýsir Mandela yngri uppákomunni:

HALLA Í HELSINKI

0

Finnska forsetaskrifstofan birtir þessa mynd af íslensku forsetahjónunum í fylgd þeirra finnsku. Fer vel á með þeim.

SÚPERSTJARNA JAPANSKRA STJÓRNMÁLA ER MÓTORHJÓLASKVÍSA OG TROMMARI

0
Í vinnunni.
Í vinnunni.

Þann 4. október 2025 var Sanae Takaichi kjörin fyrsti kvenleiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins í Japan (LDP). Fædd 1961 í Nara, hún er 64 ára.

Takaichi á að baki litríkan feril: Hún var trommuleikari í þungsrokkssveit í Kobe háskólanum, keyrir á Kawasaki Z400GP mótorhjóli og er ástríðufullur hafnaboltaaðdáandi Hanshin Tigers. Hún starfaði einnig sem sjónvarpsfréttamaður og stundaði nám við Panasonic Political School. Þá aflað hún sér reynslu í bandaríska þinginu áður en hún fór í japönsk stjórnmál.
Við trommurnar.
Við trommurnar.
Sanae hefur gegnt ráðherraembætti vísinda og tækni og húsnæðismála. Í síðustu kosningum var slagorð hennar „Með Sanae, engar áhyggjur“ og þykir pólitískur frami hennar marka söguleg tímamót fyrir konur í japönskum stjórnmálum.

MATT DAMON (55)

0

Bandaríski leikarinn, handritshöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Matt Damon er afmælisbarn dagsins (55). Sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting þar sem hann var í aðalhlutverki bæði sem leikari og höfundur handrits. Svo komu spennumyndirnar um Jason Bourne sem settu punktinn yfir i-ið.

LOGI AFTUR MEÐ SKRIÐJÖKLUNUM

0

Logi Einarsson menningarmálaráðherra kom fram með gömlum félögum í Skriðjöklum á tónlistarhátíðinni Eyrarrokk á Akureyri um helgina og sló í gegn.

Eyrarrokkið var nú haldið í fimmta sinn og alltaf uppselt. Þetta er hátíðin þar sem miðaldra karlar skipta úr virðulegum jakkafötum og gerast pönkarar á ný fyrstu helgina í október.

Logi kom fram í síðustu tveimur lögum Skriðjöklanna. Hann hélt líka tölu þar sem hann rifjaði upp hljómsveitarár sín en þá voru Skriðjöklarnir svo blankir að þeir þurftu allir að reykja úr sömu pípunni.

REYNIR GÖNGUGARPUR FÉKK HÁFJALLAVEIKI Á KILIMANJARO

0

„Það gengur á ýmsu á leiðinni á Kilimanjaro. Fjallið er ekki eins létt og ég taldi það vera,“ segir Reynir Traustason göngugarpur og fjölmiðlamaður sem er nú að klífa þetta fræga fjall með Guðrúnu konu sinni og ferðafélögum:

„Háfjallaveikin kom í bakið á mér og súrefni var eins ráðið. Er kominn í grunnbúðir ásamt góðum félögum úr gönguhópi okkar Guðrúnar. Á morgun stendur til að toppa í rúmlega 5.800 metra hæð ef aðstæður leyfa.“

Kilimanjaro er hæsta fjall Afríku – í Tansaníu.

BJÖRN INGI AFTUR Í BORGINA?

0

Sagt er að til standa að tefla Birni Inga Hrafnssyni fram í oddvitasæti Miðflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Bent er á reynslu Björns Inga í borgarstjórn þar sem hann sat um hríð áður en hann hvarf til annarra starfa. Nú er Björn Ingi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs formanns Miðflokksins þannig að hæg eru heimatökin.

Í síðustu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík tefldi Miðflokkurinn fram Ómari Má Jónssyni í fyrsta sæti en hann hafði ekki árangur sem erfiði. Ómar Már var þá kynntur sem fyrrum sveitarstjóri á Súðavík.

GERLA Í GLERHÚSINU

0
Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir ‒ sýnir um 25 ný verk unnin 2023–2025 á sýningu sem opnar á sunnudaginn í Glerhúsinu á Vesturgötu 33b. Verkin sækja innblástur í útsaum og handverk kvenna frá aldamótunum 1900, þar sem persónuleg og pólitísk reynsla fléttast saman í textíl, minni og efni.
Sýningin er haldin fimmtíu árum eftir kvennaverkfallið og minnir á mikilvægt framlag kvenna til menningar og samfélags. Í verkum sínum fléttar Gerla saman líkama, minni og femíníska reynslu. Hún heiðrar konur sem störfuðu í skugga og sýnir hvernig arfleifð þeirra heldur áfram að móta okkur.
Í tilefni sýningarinnar gefur listakonan út nýja listabók, þar sem dregið er fram samspil handverks, minna og femínískrar arfleifðar í verkum hennar.

BEKKIR FYRIR EINMANA FÓLK

0

Spjallbekk hefur verið komið fyrir í Laugardalnum í tilefni af viku einmanaleikans sem nú stendur yfir. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, starfsmaður á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar, fagnar framtakinu og segir fatlað fólk, eins og aðra, eiga á hættu að einangrast.

Hvernig þeir virka:

  • Bekkirnir eru sérstaklega merktir sem gefur til kynna að sá sem situr þar sé fús að spjalla.
  • Spjallbekkir eru staðsettir á opinberum stöðum eins og í almenningsgörðum, við gönguleiðir, í verslunarmiðstöðvum og samfélagsmiðstöðvum, sem gerir þá auðveldlega aðgengilega fyrir vegfarendur.
  • Merkingarnar hvetja fólk til að hefja samtöl, sem eflir tengsl og samfélagskennd. Þeim er ætlað að vera aðgengilegir öllum, óháð aldri eða aðstæðum, og bjóða þannig upp á lágan þröskuld til samskipta.

SEXTUGSAFMÆLI Á CATALÍNU

0

Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, heldur upp á sextugsafmæli sitt á Catalínu í Kópavogi í dag.

„Það verða pulsur og nammi og iðandi spilirí. Allir velkomnir,“ segir afmælisbarnið.