Einn mesti tenór allra tíma, Luciano Pavarotti (1935-2007), hefði orðið 90 ára í dag. Fæddur í Modena á Ítalíu og seldi 100 milljón hljómplatna á ferlinum og stóð fyrir einu vinsælasta sjónvarpsefni allra tíma, Tenórarnir þrír:
HROSSAFRÆÐI INGIMARS ENDURÚTGEFIN
„Í tilefni þessa að bókin mín, Hrossafræðin, er nú endurútgefin á næstunni, þá væri mér mikil ánægja ef þú sæir þér fært að mæta og gleðjast með mér, laugardaginn 25. október kl. 16-18, í Harðarbóli, félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ,“ segir Ingimar Sveinsson fyrrum bóndi á Egilsstöðum á Héraði og hinn eini, sanni hestahvíslari á Íslandi:
„Ég mun undirrita bækur á staðnum og boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaratriði. Hlakka til að sjá sem flesta. Allir velkomnir!“
FERÐAELDHÚS LATTE ÍBÚA Í 101

Latte íbúi í 101 útbjó ferðaeldhus á hjólum þar sem hann eldar morgunnverðinn við fyrsta hanagal. Við rúmstokkinn, í baðherberginu eða hvar sem er innan íbúðar. Spanhellan til reiðu hvenær sem er og engar áhyggjur af að maturinn brenni. Svo fer hann lattebrosandi út í nýjan dag.
ÍSLENSKIR BRÆÐUR Í HJÓLASTÓL Í KÍNA

HAUST VIVALDIS
Október ber með sér haustið. Hér er haust Vivaldis leikið af fingrum fram úr tónverki hans Four Seasons
MAGNÚS ER VETRARSINNAÐUR
Morgunblaðið spurði Magnús Pálsson myndlistarmann á förnum vegi hvernig haustið legðist í hann. „Vel,“ svaraði Magnús. „Ég er vetrarsinnaður.“
SMART LÆKNASTOFA
Skurðlæknarnir á læknastöðinni í Lágmúla hafa sans fyrir hönnun. Móttökuborðið í biðstofu er hannað líkt og stór sjúkrakross með tilheyrandi borðflötum. Ofan á borðinu trónir svo andapar í líki skurðlæknis og hjúkrunarkonu. Smart.
LÍF Í BERLÍN
Reykjavíkurborg hefur skuldbundið sig til að taka þátt í alþjóðlegu verkefni sem miðar að því að efla líffræðilega fjölbreytni í borgum, endurheimta vistkerfi og treysta græna innviði. Líf Magneudóttir, formaður borgarráðs, undirritaði Náttúruborgarsamning Berlínar (Berlin Urban Nature Pact), fyrir hönd borgarinnar í Ráðhúsinu í Berlín, höfuðborg Þýskalands, í fyrradag:
„Eitt af okkar brýnustu verkefnum í samtímanum er varðveisla og endurheimt náttúru og búsvæða lífvera í ört stækkandi borg. Við Reykvíkingar erum lánsöm að hafa greitt aðgengi að náttúrulegum svæðum og grænum íverustöðum en við megum ekki taka þeim sem gefnum. Við verðum að hlúa að þeim og átta okkur á að þessir staðir eru einnig mikilvægir og lífsnauðsynlegir fyrir aðrar lífverur, rétt eins og okkur. Við eigum að leggja okkur fram við að efla og fóstra borgarnáttúruna okkar og vera meðal fremstu borga þegar það kemur að líffræðilegri fjölbreytni,“ segir Líf.
ELLINÖÐRUR Á TENE

„Í gærmorgun fóru nokkrir heldriborgarar með vetrarsetu á Tenerife í langferð á ellinöðrum og það náðist mynd af þeim þar sem þeir staðnæmdust við frægt minnismerki á ströndinni nærri Parque Santiago 4. Mér hafði að sjálfsögðu ekki verið boðið með sem betur fer, enda alltof ung fyrir svona skemmtiferðir,“ Anna Kristjánsdóttir vélstjóri sem einnig er með vetursetu á Tene:
„Ég verð að játa að myndin er stórkostleg. Þarna sitja heldriborgararnir á sínum ellinöðrum…Ég hitti flest þeirra á miðvikudagskvöldi á Babylon hvar við áttum góða stund saman, en sem betur fer höfðu þau skilið ellinöðrurnar eftir heima, enda skilst mér að eftir einn, ei aki neinn. Slík lögmál gilda einnig um ellinöðrur svo því sé komið til skila.“
JOHN LENNON (85)
John Lennon hefði orðið 85 ára í dag. Hann var næst elstur Bítlanna, aðeins Ringo var eldri, fæddur fyrr á árinu 1940.


