ENGIN KEMUR Í AFMÆLIÐ – ALLIR Í SUMARFRÍI
ROGER MOORE (98)
Roger Moore (1927-2017), hinn mjúki James Bond, hefði orðið 98 ára í dag. Hann lék í sjö Bond-myndum frá 1973-1985 og gerði það með sínum stíl og stæl.
HJÁLEIÐ VIÐ HEKLUREIT
Vegfarandi við Heklureitinn ofarlega á Laugavegi greip til sinna ráða eftir endurtekna erfiðleika við að komast leiðar sinnar vegna nýbygginga. Útbjó skilti og festi upp á viðeigandi stað.
SÚPERFÓSTRAN (68)
Margrét Pála Ólafsdóttir súperfóstra og höfundur Hjallastefnunnar er afmælisbarn dagins (68). Hún fær óskalagið Let The Children Play.
VESTURPORT Í GUFUNES
Vesturport hefur fengið vilyrði fyrir lóð í Gufunesi og með því styrkist enn frekar skapandi starfsemi á svæðinu. Gufunesið hefur verið kallað Þorp skapandi greina og áhersla verið lögð á að laða að fyrirtæki á sviði kvikmyndastarfsemi og nú bætist leikhússenan við.
Borgarstjóri sagði frá lóðavilyrðinu á kynningafundi um Athafnaborgina á föstudag, en á þeim fundum er fjallað um atvinnulíf og uppbyggingu innviða. Vesturport, sem er þekkt fyrir nýstárlega nálgun á sviðslistir og hefur gert garðinn frægan á alþjóðavettvangi, stefnir á að byggja upp starfsemi sína í Gufunesi, upplýsti Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og kallaði hún Gísla Örn Garðarsson forsvarsmann Vesturports upp á svið til undirskriftar. Eins og venja er um slík vilyrði er það með fyrirvara um samþykki borgarráðs.
„Það er gleðiefni fyrir okkur að fá að taka þátt í uppbyggingu menningarstarfsemi á jafn spennandi svæði og Gufunesið er. Að reisa okkur rými til lífs, leiks og lista í beinni tengingu við verðandi íbúa. Það er vissulega tilhlökkunarefni að ganga til liðs við þá grósku sem nú þegar blómstrar í hverfinu og fá að setja mark okkar á áframhaldandi menningarstarf í borginni“, segir Gísli Örn. Hann rifjaði upp við undirritunina að á næsta ári yrðu liðin 25 ár frá því Vesturport hóf starfsemi sína í litlum skúr á Vesturgötu og tók hópurinn nafn sitt af því.
SÓLVEIG ANNA MINNIST DIÖNU KEATON OG MÓÐUR SINNAR
„Diane Keaton er látin, 79 ára að aldri,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir verkalýðsforingi í Eflingu í hugljúfri færslu:
„Mamma var líka 79 ára þegar hún dó. Þær áttu það sameiginlegt að vera skemmtilegar, fyndnar, klárar og smart. Þeim hefði ábyggilega þótt gaman að hittast.“
ISAVIA DÝRASTA LAND Í HEIMI
Isavia í Sandgerðishreppi er orðið ríki í ríkinu. Þeir sem hafa heimsótt Isaviu ber saman um að það sé dýrasta land í heimi.
PAVAROTTI (90)
Einn mesti tenór allra tíma, Luciano Pavarotti (1935-2007), hefði orðið 90 ára í dag. Fæddur í Modena á Ítalíu og seldi 100 milljón hljómplatna á ferlinum og stóð fyrir einu vinsælasta sjónvarpsefni allra tíma, Tenórarnir þrír:
HROSSAFRÆÐI INGIMARS ENDURÚTGEFIN
„Í tilefni þessa að bókin mín, Hrossafræðin, er nú endurútgefin á næstunni, þá væri mér mikil ánægja ef þú sæir þér fært að mæta og gleðjast með mér, laugardaginn 25. október kl. 16-18, í Harðarbóli, félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ,“ segir Ingimar Sveinsson fyrrum bóndi á Egilsstöðum á Héraði og hinn eini, sanni hestahvíslari á Íslandi:
„Ég mun undirrita bækur á staðnum og boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaratriði. Hlakka til að sjá sem flesta. Allir velkomnir!“
FERÐAELDHÚS LATTE ÍBÚA Í 101

Latte íbúi í 101 útbjó ferðaeldhus á hjólum þar sem hann eldar morgunnverðinn við fyrsta hanagal. Við rúmstokkinn, í baðherberginu eða hvar sem er innan íbúðar. Spanhellan til reiðu hvenær sem er og engar áhyggjur af að maturinn brenni. Svo fer hann lattebrosandi út í nýjan dag.


