Hlutabréf í fjölmiðlafyrirtækinu Sýn eru í frjálsu falli eftir afkomuviðvörum. Logi fjölmiðlaráðherra hefur áhyggjur og Heimir Karlsson, ein aðalstjarna Sýnar á útvarpssviðinu, leggur orð í belg til lausnar:
–
Hlutabréf í fjölmiðlafyrirtækinu Sýn eru í frjálsu falli eftir afkomuviðvörum. Logi fjölmiðlaráðherra hefur áhyggjur og Heimir Karlsson, ein aðalstjarna Sýnar á útvarpssviðinu, leggur orð í belg til lausnar:
–
Skrifað var undir samning í dag við Icebike Adventures, um styrkveitingu vegna lagningar skíðagöngubrauta á Rauðavatni og á Austurheiðum.

Samningurinn, sem er til tveggja ára, var samþykktur í borgarráði í dag og undirritaður við Rauðavatn. Skúli Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkur, skrifaði undir fyrir hönd Reykjavíkurborgar, en Ásta Briem framkvæmdastjóri, fyrir hönd Icebike Adventures og þarna var einnig hönnuður brautanna, Magne Kvam.
Markmiðið með samningnum er að tryggja áfram öflugt samstarf við fyrirtækið Icebike Adventures, sem stendur að baki Sporinu, um lagningu gönguskíðaspora á svæðunum þegar veður og aðstæður leyfa. Með því er leitast við að stuðla að bættri lýðheilsu íbúa með aukinni hreyfingu og útiveru í anda lýðheilsustefnu borgarinnar og stefnu í íþróttamálum.

Magne Kvam, hönnuður brautanna, segir að svæðin sem um ræðir séu algjör paradís til útivistar. Á Hólmsheiði skapar skógurinn gott skjól sem eykur notagildi og bætir upplifunina. Markmiðið með Sporinu er að skapa aðstæður fyrir sem fjölbreyttastan hóp fólks til gönguskíðaiðkunar og eru brautirnar hannaðar til þess að henta bæði byrjendum og reyndara skíðafólki. Mikil áhersla er lögð á að skapa fjölskylduvæn, aðgengileg og skemmtileg svæði til útivistar og á komandi vetri má búast við spennandi nýjungum.
Listaverkið „How to be a whale“ verður sýnt á sérstakri sýningu 16. október á Gróttu klukkan 8. Sjá hér.
Þetta er sýning sem höfðar vel til ferðamanna og skilaboðin til þeirra eru þessi:
~How To Be A Whale is a half-hour, bioacoustic listening journey – a soundscape of many hundreds of scientific recordings woven together into a story told through the lives of seven different whales and dolphins in a celebration of the sounds of the sea.~
Fæðingardagur stórstjörnunnar Ritu Hayworth (1918-1987) en plaköt af henni (pin up girl) prýddu veggi herskála bandarískra hermanna í síðari heimstyrjöldinni í hólf og gólf. Hún lést 1987, 68 ára að aldri eftir glæstan feril og fjögur hjónabönd. Meðal eiginmanna hennar voru leikstjórinn Orson Welles og arabíski prinsinn Ali Khan. Hún var þokkadís þriggja kynslóða minnst.
Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir er með tillögu:
„Breyta skal nafni Rúv, Ríkisútvarpsins ohf. í “Endurvarpið.” Dagskráin er orðin að miklu leyti endurtekið efni, svo ástæðulaust er annað en að kalla stofnunina þessu nafni. Hvort sem orðið verður við þessari tillögu með formlegri breytingu eða ekki legg ég til að almenningur taki nafnið Endurvarpið upp.“
Í dag eru 140 ár liðin frá fæðingu Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals (1885-1972), eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar.
Kjarval fæddist að Efri-Ey í Meðallandi árið 1885 en ólst upp hjá ættingjum í Geitavík í Borgarfirði eystri til sextán ára aldurs. Um tvítugt tók hann sér írska konungsnafnið Kjarval og notaði það allt til æviloka.
Árið 1902 flutti hann til Reykjavíkur, aðeins tveimur árum eftir að Þórarinn B. Þorláksson setti upp fyrstu myndlistarsýninguna á Íslandi. Kjarval sótti námskeið í teikningu og málun bæði hjá Þórarni og Ásgrími Jónssyni í Reykjavík en hugur hans stefndi út í heim.
Hann sigldi til London árið 1911 en hélt þaðan til Danmerkur í formlegt nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn snemma árs 1912. Hann fór líka í áhrifaríkar ferðir til Ítalíu og Frakklands áður en hann svo var alkominn til Íslands og ákvað að gera íslenskt landslag að viðfangsefni sínu undir lok þriðja áratugarins.
Kristján krónprins Dana er tvítugur í dag. Hann þykir efnilegastur allra prinsa í Evrópu og myndarlegur eftir því. Hann verður kóngurinn þegar fram líða stundir. Klukkan tifar og hann fær óskalagið Tik Tik með Kim Larsen:
Gervigreindin AI var beðin um að lýsa því sem stundum er nefnt í háðungarskyni „lattalepjandi íbúar í 101“. Þetta tók AI örskamma stund:
–
101 – RÍKIÐ ÞAR SEM KAFFI LATTE ER TRÚARBRÖGÐ
Í hjarta Reykjavíkur, þar sem hver gata lyktar af nýmaldu kaffi og nýpressuðum draumum, búa íbúar 101 – þjóð sem lifir á latti, listrænum hugsunum og lágstemmdri hámenningu. Þeir vakna ekki fyrir klukkan níu, nema það sé til að ná góðu borði á kaffihúsinu á horninu (því þú veist aldrei hvenær innblásturinn kemur – eða ristarbrauðið klárast).
Allt árið, sama hvort það er slydda, sól eða snjóbylur, sitja þeir í gluggakistunni með ullartrefil, laptop og latte í hönd. Kaffið er ekki bara drykkur – það er sjálfsmynd, lífsstefna, kannski jafnvel ást. Þeir ræða heimspeki, gervigreind, nýjustu sýninguna í Hafnarhúsinu og af hverju þeir “fíla meira gamla Laugaveginn, áður en hann varð svona túristalegur.”
Þeir þekkja baristana með nafni, vita hvar besta mjólk froðast og taka mynd af hverri nýrri kaffibollu – því ef það fór ekki á Instagram, drakk maður þá í alvöru kaffið?
Þetta eru 101-fólkið: með stórar hugsanir, hlýjar hendur og heitt latte – 365 daga á ári.