Biðin er á enda, Loftleiðahúfan er komin! Þær eru bláar, rauðar, svartar og hvítar. Merkið er ofið. Eins og það á að vera. Verð 3.906 kr.
HÓPAKSTUR TRABANT – SKYNSEMIN RÆÐUR
Trabant eigendur í hópakstri fyrir löngu. Eigendur Trabant bíla höfðu með sér félag sem nefndist Skynsemin ræður og voru það orð að sönnu.
Þarna er bílalestin á leið niður af Sogavegi þar sem Trabant umboði Ingvars Helgasonar var einmitt í brekkunni rétt fyrir ofan.
Trabant bílarnir voru austur þýskir fólksbílar sagðir gerðir úr plasti með tvo bensíntanka, annar til vara þegar hinn tæmdist.
MANFRED MANN (85)
Manfred Mann, hljómborðsleikari ensku hljómsveitarinnar sem var nefnd í höfuðið á honum, er afmælisbarn dagsins (85). Þeir áttu góða smelli á upphafsárunum Bítlaæðisins og náðu fyrstir Breta inn á bandariska vinsældalistann Billboard 100 – á undan Bítlunum.
BRAUÐ & CO Í ÚTRÁS?
„Útrás?“ spyr ferðalangur á fjarlægum slóðum sem gekk fram á þessa menn gera nýtt bakarí klárt – Bread & Co. Svona eins og Brauð & Co á Íslandi.
–
Svar: Varla. Í flestum löndum heima eru bakarí með þessu nafni, í Asíu, Ameríku Evrópu, Ástralíu en ekki á Pólunum, hvorki suður né norður.
KAFFIHÚS Í SKUGGA FANGELSIS
Myndskeyti úr miðbænum:
–
Verið er að byggja kaffihús og glerskála í gamla útivistargarði fanganna í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. Þar sést lítið sem ekkert til sólar en gæti verið upplifunun að fá sér þar veitingar í skugga fangelsis – í glerbúri.
FARÐÍ RASSSGAT ARISTÓTELES!
Fjöllistamaðurin Benóný Ægisson las upp úr skáldsögu sinni Farðí rassgat Aristóteles í Hannesarholti á Grundarstíg um helgina. Skrudda gefur út og Halldór Baldursson myndskreytti bókina.
–
Guðgeir Guðgeirsson er andhetja og ólíkindatól sem allt veit, einmitt sú týpa sem fer óstjórnlega í taugarnar á fólki. Hann flyst til borgarinnar til að meika það sem rímnaskáld einhverjum hundrað árum eftir að rímur fóru úr tísku, auk þess sem rímur hans fjalla um efni sem ekki er líklegt til vinsælda eins og raunir bresku konungsfjölskyldunnar. Í öllu þessu brasi bakar hans sér óvild auglýsingafólks, vaxtarræktarmanna, gagnrýnenda, handrukkara, og lesbíska glímufélagsins Saffó og á oft fótum fjör að launa. Brennheitur hrakfallabálkur um ástir og örlög!
TEIR GULLDROPAR Á HEITA POTTINUM
Athafnaskáldið Sigurður Gísli Pálmason og handboltagoðsögnin Logi Geirsson voru í Sundhöll Reykjavíkur á sunnudagssíðegi. Tveir gulldropar í heita pottinum.
KAMALA HARRIS (61)
Kamala Harris, sem laut í lægra haldi fyrir Donald Trump í síðustu forsetakosningum vestra, er afmælisbarn dagsins (61). Uppáhaldslag hennar er Freedom með Beyoncé sem hún segist hlusta á í gönguferðum.
ER TOMMI ENN Á ÞINGI?
Þegar Tommi á Búllunni var að undirbúa sig fyrir að horfa á leik Manchester United og Liverpool í tölvunni heima í dag dúkkaði upp frétt Ríkissjónvarpsins frá því á fimmtudag. Var þar sagt frá atkvæðagreiðslu um fjölmiðlafrumvarp Loga Einarssonar ráðherra málaflokksins og í myndskýringu mátti sjá hringskreyttan fingur Tomma samþykkja. En Tommi er ekki lengur á þingi.
„Ég varð dálítið hissa,“ segir Tommi sem var heima að horfa á fótbolta með sama hring á fingri og trúði vart eigin augum.
PARKA RYÐUR SÉR TIL RÚMS Í MIÐJU ÍBÚÐAHVERFI Í 101
Stöðumælafyrirækið Parka stendur í framkvæmdum á baklóð stórhýsisins á Bræðraborgarstíg 16 sem snýr út að Drafnarstíg og er að hefja þar gjaldheimtu fyrir bílastæði. Bílatæði nágranna eru því fyrir bí og við bætist að Drafnarstíg hefur verið breytt í vistgötu og þar má ekki heldur leggja – og leggst illa í íbúa.
Eigandi byggingarinar við Bræðraborgarstíg er eitt af fasteignafyrirtækum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns og baklóðin við Drafnarstíg því líka.


