Starfsfólk í flöskumóttöku Endurvinnslunnar er að koma sér upp minjasafni fyrir fágætar, gamlar flöskur sem rekur á fjörur þeirra. Hér er ein:
Appelsínu-límonaði frá Sanitas, merkt: „ekta ávaxtadrykkur, nærandi – blóðaukandi – svalandi“.
„Flaskan er líklega frá 6. áratug síðustu aldar og nálgast því áttræðisaldurinn. Við erum himinlifandi að hafa bjargað henni frá brjótnum okkar og fær hún heiðurssæti í Minjasafninu sem ein af elstu flöskum sem skilað hefur verið inn,“ segja þeir á Minjasafni flöskumóttöku Endurvinnslunnar.







