Borist hefur póstur:
–
Ég fer stundum með strætó frá Reykjavík til Akureyrar að kvöldlagi og virðist lítill áhugi á að gera ferðina bærilega fyrir þá sem vilja lesa eða fara á netið. Hvorki eru ljós í bílunum né internet þrátt fyrir auglýsingar um annað. Geta má þess að leiðin er ríkisstyrkt en Vegagerðin annast aksturinn en fól hann Strætó skv. útboði, sem fól hann undirverktaka sem sennilega fól hann fyrirtækinu sem á rútuna. Þannig er nú millliðaverndin á Íslandi. Sem sagt, fjögur núll!






