„Svona er bandariskt fjölmiðlaumhverfi í dag,“ segir Bernie Sanders fyrrum forsetaframbjóðandi vestra og útlistar það svona:
„Ríkasti maður í heimi, Elon Musk, á X. Næst ríkasti maður heims, Larry Ellison, á Paramount, CBS innifalin, og er líklega að yfirtaka TikTok og CNN. Jeff Bezos á Wahington Post og Twitch. Mark Zuckerberg á svo Facebook og Instagram.
Í stuttu máli; ríkustu menn heims eiga alla fjölmiðlana sem skipta máli.
Þegar rætt er um ólígarka í Bandaríkjunum snýst það ekki aðeins um tekjur þeirra og miskiptingu auðs. Heldur stjórn þeirra á fjölmiðlunum og því hvað Bandaríkjamenn fá að sjá, heyra og lesa.“






