„Ég hef lengi vitað að ég er haldin starfsauglýsingafíkn. Ég má helst ekki sjá auglýsingu án þess að langa, í eitt augnablik, að sækja um hana. Þetta er freistnivandi sem gerir engan greinarmun á gæði og eðli starfa,“ segir athafnakonan og dægurstjrnan Snærós Sindradóttir
–
„Öfgafyllstu áhrifin koma fram þegar störf eru auglýst á Facebook því þá er hvert starf kynnt eitt og stakt, en ekki í hópi og hrærigraut annarra starfa. Miðillinn er búinn að fatta þennan veikleika minn, svo ég fæ straum starfaauglýsinga.
Þá skiptir engu að ég sé orðin bæði galleristi í SIND og framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. Ég verð enn alveg jafn spennt fyrir starfi sundlaugarvarðar í Þelamörk eða starfi umsjónarmanns fasteigna í grunnskólanum á Stöðvarfirði.
Lækning óskast.“






