„Flaska vikunnar er Soccerade frá árinu 2010 skreytt sjálfum Cristiano Ronaldo, einum besta knattspyrnumanni allra tíma,“ segir í tiLkynningu frá flöskumóttökustöð Endurvinnslunnar.
–
„Flaskan er í toppstandi og hefur líklega verið skraut í herbergi hjá sönnum aðdáanda. Margir halda að plastflöskur frá Endurvinnslunni endi í brennslu en það er ekki rétt!
Svokallað PET plast (sem notað er í gosdrykki og safa) fer til viðurkenndra endurvinnslustöðva þar sem úr verður rPET, endurunnið plast sem notað er í nýjar umbúðir. Það sem truflar ferlið er þegar ódýrari plasttegundir slæðast með. En þessi Ronaldo flaska? Hún fer beint í safnið okkar.“







