Tónlistarfélagið í Reykjavík kom Tripolibíó á laggirnar árið 1947 í bragga við Suðurgötu sem notaður hafði verið undir leik- og kvikmyndasýningar á stríðsárunum. Kvikmyndahúsið malaði gull fyrir Tónlistarfélagið. Rekstur kvikmyndahúsa var á þessum árum háður ströngum leyfum, en félagið fékk auk þess skemmtanaskattinn í sinn hlut samkvæmt sérstöku samkomulagi við ríkisstjórnina. Um áratug síðar hóf Tónlistarfélagið byggingu Tónabíós í Skipholti, en það var vígt 1962.

Tripoli?
Bíóið var í herbragga sem stóð eftir af hernámskampi sem kenndur var við frægan sigur sem Bandamenn (Bretar) unnu við Tripoli í ársbyrjun ´43.







