Saxbauti í dós, niðursoðinn hjá KEA á Akureyri, var vinsæll réttur á Íslandi og fáanlegur í tveimur dósastærðum. Sá stærri með sjö buffum og minni með fjórum buffum. Framleiðslunni var hætt 1990.
Saxbautinn var vel kryddaður og bragðsterkur og jafnvel matvöndustu börn hámuðu hann í sig eins og sælgæti – og fullorðnir líka. Fyri utan kryddið var nautahakkið blandað hveiti og eggjum og síðan mótað í hringlaga buff og steikt á pönnu.Með þessu var algengt að hafa steiktan lauk í brúnni sósu, soðnar kartöflur og oft rauðkál, rauðrófur, sýrðar gúrkur og sultu.
Saxbautans sakna margir.






