Í Möðrudal á fjöllum ganga svín laus meðal túrista og vekja athygli þar sem þau narta í gras fyrir utan Fjallakaffi en þar eru bakaðir bestu ástarpungar á landinu. Svínin ganga svo langt að elta ferðamennina alveg inn á veitingastaðinn, hrínandi eins og geltandi hundar – en fá ekki aðgang.
Þetta finnst túristunum skemmtilegt.






