Maurice Tempelsman, síðasti kærasti Jacqueline Kennedy Onassis, andaðist 23. ágúst. Hann var 95 ára. Tempelsman var demantakaupmaður og oft nefndur demantakóngurinn, belgískur að uppruna. Fjölskylda hans flúði vestur um haf undan nasistum í síðari heimstyrjöldinni og kom sér vel fyrir í Bandaríkjunum í demantaviðskiptum sem hún hafði lengi stundað í Belgíu.






