„Það hefur satt að segja à aldrei á ferlinum verið jafnmikið að gera hjá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, sem var harkalega slaufaður í MeToo byltingunni og nánast vísað út í hafsauga:
„Í sumar hef ég ferðast mikið um landið með gítarinn og spilað í veiðihúsum, afmælum, útilegum, brúðkaupum og fyrir mörg flottustu fyrirtæki landsins.
Ég er glaður að geta starfað við eitthvað sem er oftast mjög skemmtilegt og gefandi.“






