Los Bomboneros, hinir glaðbeittu sendiherrar íslenskrar latíntónlistar, efna til einstakra stórsveitartónleika þann 11. október í Salnum í Kópavogi. Þar stýrir Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir stórsveitarútgáfu hljómsveitarinnar – Los Bombasticos – sem mun flytja margar helstu perlur Tómasar R. Einarssonar en þennan ástsæla lagahöfund og bassaleikara má með sanni kalla Latínbónda Íslands.
–
Í lögum Tómasar frá meira en 40 ára ferli fléttast saman djass, íslenskur stormur og kúbanskur hiti. Á þessum óvenjulegu tónleikum munu helstu stórsveitarútsetjarar landsins klæða lögin í skæran og litríkan stórsveitarbúning og gestasöngvararnir Mugison og GDRN setja mark sitt á lög Tómasar með seiðmagnaðri nærveru sinni.







