Home Blog Page 79

GAMALL FILMUBÚTUR FANNST Á KASSABOTNI – ÞEKKIÐ ÞIÐ FÓLKIÐ?

0
Bjarni Harðarson
Bjarni Harðarson

„Innan úr gömlum bókum detta stundum bíómiðar, lyfseðlar, peningar, hárlokkar og jafnvel … filmur,“ segir Bjarni Harðarson bóksali, útgefandi og fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins:

„Þessar myndir voru á svarthvítum filmubút sem lá eftir á kassabotni eftir að flokkað hafði verið úr ótölulegu kassafjöld og enginn gat sagt hvaðan sá kassi kom. Getraunin sem er þessvegna – þekkir einhver þetta fallega miðaldra fólk sem pósar hér fyrir á að giska hálfri öld síðan.“

Hvaða fólk er þetta?
Hvaða fólk er þetta?

CLINTON (79)

0

Bill Clinton, 42 forseti Bandaríkjanna (1993-2001), er afmælisbarn dagsins (79). Ferill hans sem forseti var þyrnum stráður þegar fram í sótti. Ósmekkleg kvensemi varð honum fjötur um fót og varpaði skugga á önnur verk hans – Slly Love Songs:

LJÓSASKIPTI Á HÉRAÐI

0

Miðnætti austur á Héraði í ljósaskiptunum. Alger stilla, logn, þögn og og hlýtt.

FOKDÝRT AÐ DEYJA

0

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg.

Gvendur gamli smali er jafnan orðfár, en  hreytti út úr sér eftirfarandi vísukorni við lestur fréttaskeyta um óheyrilegan kostnað við útfarir sem getur hlaupið á milljónum:

Við dauða ber þegnum að þegja,
það skal í minnum haft,
en – ef það er fokdýrt að deyja,
djöfull skal ég rífa kjaft!

DRAUMUR GUÐMUNDAR RÆTTIST – FORD BRONCO

0
„Ég eignaðist draum árið 1974 þegar ég var 13 ára gamall og það var að eignast Ford Bronco þegar ég yrði eldri,“ segir Guðmundur Guðmundsson handboltasjarna á heimsvísu, þjálfari, leikmaður og allur pakkinn:
„Ég er nú orðinn eldri. Draumurinn rættist, en ég lét hann líka rætast. Skilaboðin frá mér eru, eignist draum og látið hann rætast.“

BRANDARABISNISS

0

Brandari helgarinnar. Eða hvað?

LÚXUS Í LÚX

0

Lúxemborg er fyrsta ríkið í Evrópu sem býður upp á ókeypis almenningasamgöngur með strætó, lestum og sporvögnum en flugvélar eru ekki innifaldar. Borgarlínur sem bragð er af.

MADONNA ELDRI BORGARI (67)

0

Náttúruaflið Madonna er orðin 67 ára – eldri borgari. Hún er söluhæsta söngkona allra tíma – 300 milljón stykki – takk fyrir!

KÚMENTÍNSLA Í VIÐEY

0

Þann 18. ágúst fer árlega Kúmentínslan fram Í Viðey. Kúmenfræin í Viðey eru orðin fullþroskuð til að tína og gestum er boðið í fræðandi uppskeruferð. Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur leiðir tínsluna og segir gestum frá sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey.

Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er.

Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf eða skæri.

NAPÓLEON

0

Fæðingardagur franska hershöfðingjans Napóleon Bónaparte (1769-1821). Ríkti sem keisari í Frakklandi1804-1815 (með pásu) og gerði afdrifaríkar tilraunir til að auka veldi Frakka í Evrópu með Napóleonstjyrjöldum en beið svo endanlega lægri hlut í orustunni við Waterloo og í framhaldinu sendur í útlegð.