Home Blog Page 80

HITCHCOCK (126)

0

Meistari hrollvekjunnar, fæðingardagur kvikmyndaleikstjórans Alfred Hitchcock (1899-1980) er í dag. Einn áhrifamesti leikstjóri heims á sinni tíð og enn stúderaður meira af fræðimönnum en aðrir. Ferill hans spannaði 60 ár og þar ber hæst kvikmyndirnar Psycho og Vertigo – svo ekki se minnst á The Birds.

SKÍTAREDDINGU TÓTA HAFNAÐ

0

„Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða hafnaði umsókn okkar vegna uppbyggingar salernisaðstöðu því almenningssalerni væri að finna í 20 kílómetra fjarlægð. Rúturnar stoppa samt ekki þar þannig að við erum fyrsta stopp frá Reykjavík og 25% gesta í spreng.
Svo miklum spreng að ótrúlega margir láta bara vaða á og við bílastæðið, sem er ekki lekkert,“ segir Tóti Stefánsson athafnamaður en um er að ræða bílastæði við Selaströndina við Ytri Tungu á Snæfellsnesi.

„Við erum ekki búin að safna í sjóð fyrir salernisaðstöðu og rekstri hennar, en eitthvað þurfti að gera. Við settum því upp huggulegasta kamar sem við fundum og erum núna að fylgjast með ágangi til að reikna út hversu öflug salernisaðstaðan, rotþróin, þrif og þjónusta þurfa að vera. Okkur sýnast þetta vera 5000 hlöss á mánuði yfir sumartímann – að minnsta kosti. Þá getum við reiknað Price per Poo. “

SÆVAR KARL Á MOKKA

0

Sævar Karl opnar sýninguna Landslag á Mokka á Skólavörðustíg 14. águst og stendur sýningin til 1. október. Á sýningunni eru glæný blómstrandi landslagsmálverk unnin hér heima og í München þar sem Sævar Karl hefur verið búsettur um árabil ásamt eiginkonu sinni og stundað þar málaralist með góðum árangi. Málverkin eru kraftmikil, litrík og orkumikil og gerð af mikilli sköpunargleði og innblásin af blómlegum görðum þar sem hann málar af krafti.

Sævar Karl (f. 14. 8. 1947) hefur stundað myndlistarnám við ýmsa listaháskóla hérlendis í Þýskalandi og Austurríki. Hann hefur sýnt víða um heim m.a. í Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og Englandi.

Sýningin er sölusýning, þeir sem hafa áhuga á að eignast verk hafi samband við Sævar í síma 897 4699 eða +49 89 53 88 67 63 og hjá starfsfólki Mokka. 

ÁRMANN REYNISSON LEIKUR Í ÁSTRALSKRI STUTTMYND

0

Borist hefur fréttaskeyti:

Ármann Reynisson hefur að vana að vitja leiði föður fólksins sins í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu í Reykjavík einn góðviðrisdag að sumarlagi. Í leiðinni spásserar hann um hinn friðsæla og fallega garð.

Nú í sumar mætti hann miðaldra manni í kirkjugarðinum sem kynnti sig sem Adam Briggs kvikmyndaframleiðanda frá Ástralíu sem kom til landsins þá um morguninn. Sá hinn ókunnugi spurði Ármann hver hann væri og fékk útskýringu og nafnspjald með heimasíðu sinni. Daginn eftir sendi Adam Ármanni tölvupóst með ósk um að leika ,,fuglaskoðara‘‘ í stuttmynd fyrir alþjóða markaðinn. Ármann sló til, ekki óvanur kvikmyndaleik – lék lögmann í glæpamyndinni ,,Allir litir hafsins‘‘ fyrir um tuttugu árum síðan.

Takan tók sinn tíma, fór fram 5. ágúst s.l. í slagviðri, rétt veður fyrir senuna, á göngubrúnni yfir Hringbraut gengt Norræna húsinu. Það sló heldur betur að Ármanni sem fékk hinn mesta hroll á ævinni og þurfti að fá sér portvínsstaup og leggjast undir feld um tíma til að hita sig upp og jafna sig.

,,Allt er þegar þrennt er.‘‘ Nú býður Ármann spenntur eftir því hvaða leikstjóri óskar eftir kröftum hans í þriðju kvikmyndina.

GEORGE HAMILTON (86)

0

Leikarinn George Hamilton er afmælisbarn dagsins (86). Þekktur fyrir ótal hlutverk og þá helst í sjónvarpsþáttaröðum. Hann sker sig út hópi leikara með því að vera alltaf óvenju sólbrúnn, eiginlega „hell tanaður“ eins og sagt er. Eiginlega vörumerki hans.

BARNASVALIR Í LONDON

0

London 1948. Íbúar sem ekki voru með garð létu margir útbúa frumstæðar svalir eins og búr fyrir börn svo þau gætu verið úti.

KAFFIBOLLI Á 7.500 KRÓNUR Á HELLISHEIÐI

0

Gestum í Hellisheiðarvirkjun er boðið upp á kaffi í sérhönnum bollum sem eru í takt við túrbínurnar á staðnum. Kaffibollinn er til sölu og kostar 7.500 krónur – bollinn sjálfur, ekki kaffið.

MÁVAVEISLA

0

Mávurinn hafði úr nógu að moða eftir Gay Pride.

BÍLSTJÓRAR LÁTNIR BLÁSA Í GLEÐIGÖTUNNI

0

Lögreglan var með vakt á horni Klapparstígs og Njálsgötu síðdegis í gær þegar fólk fór að týnast heim eftir Gleðigönguna. Enginn slapp í gegn, allir látnir blása af tveimur lögfreglukonum sem stóðu vaktina.

Klapparstígur hefur einnig verið nefndur Gleðigatan og er merktur því nafni í götunni miðri enda ein þekktasta bargata bæjarins með bjór, vín og kokteila í öðru hverju húsi. Það veit lögreglan og tékkar því reglulega á.

TRUMP SKIPAR BILLY LONG SENDIHERRA Á ÍSLANDI

0

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Billy Long sendiherra á Íslandi. Billy er stækur stuðningsmaður forsetans og MAGA stefnu hans.

Skipan Billy Long í þessa sendiherrastöðu var eitthvað neyðarúrræði hjá Trump. Enda vissi Long ekki hvar Ísland var á heimskortinu fyrir þessa skipan né nokkuð annað um landið. En Trump hafði „neyðst“ til að reka Long úr embætti ríkisskattstjóra Bandaríkjanna vegna þess hversu vanhæfur hann var að gegna því, að mati Trump.

Raunar segir það ekki alla söguna því Long er sjötti einstaklingurinn til að gegna stöðu ríkiskattstjóra hjá Trump frá áramótum. Trump skiptir um þessa menn eins og sokka.