Home Blog Page 81

TRÚLEGT EN LOGIÐ

0

Ekki trúa öllu sem þú sérð á samfélagsmiðlum. Þar eru grínistar á hverju strái.

LILLI ÚRILLI OG HANS HÁTIGN FÍFLIÐ

0

ANTONIO BANDERAS (65)

0

Vinsælasti spænsk-ameríski kvikmyndaleikari allra tíma, Antonio Banderas, er afmælisbarn helgarinnar (65). Fyrir utan að leika þykir hann slyngur viðskiptamaður og hefur unnið með snyrtivörurisanum Puig um árabil og verið andlit þess ilms sem þar er framleiddur.

EDITION Í REGNBOGALITUM

0

Edition lúxushótelið á hafnarbakkanum hjá Hörpu lýsir upp skilti sitt í regnbogalitum í tilefni af Gay Pride. Hótelstjórnin segir í tilkynningu:

„As Reykjavík lights up for Pride, so does our sign. In honour of the rainbow, its colours shine from our rooftop across the city, a glowing tribute to love, unity, and celebration. Here’s to a week filled with colour and connection. 

ÁN ORÐA

0

DUSTIN HOFFMAN (88)

0

Stórleikarinn Dustin Hoffman er 88 ára í dag. Happy Birthday Dustin!

VATNSLISTAVERK BLEYTIR UPP Í VEGFARENDUM Í HAFNARSTRÆTI

0
Vatnslistaverk við enda Hafnarstrætis í Reykjavík er ekki alveg að gera sig. Vatnsbuna sem stendur upp í loft og myndar síðan polla í göngugötunni. Vegfarendur geta orðið blautir í fæturnar og ættu helst að vera í gúmmískóm.

SAGAN ENDURTEKUR SIG Á STÖÐVARFIRÐI

0
Frétt mbl.is 2025.
Frétt mbl.is 2025.

Frétt um niðurgan íbúa á Stöðvarfirði sem birtist í DV fyrir rúmum 40 árum gengur nú aftur í Morgunblaðinu. Í báðum tilfellum má rekja pestina til mengunar í vatnsbóli staðarins.

„Hún er á und­an­haldi, en við vor­um samt að senda út til­kynn­ingu þar sem við mæl­umst til þess að fólk sjóði vatn áfram, alla vega fram yfir helgi,“ seg­ir Jóna Árný Þórðardótt­ir bæj­ar­stjóri Fjarðabyggðar í Morgunblaðinu nú.

Frétt DV um sama vandamál fyrir áratugum var tilfinningaþrungnari í lýsingum héraðslæknisins sem sjálfur var á sjöunda degi í pestinni og líkti veikindunum við fæðingarhríðir.

STÖÐUMÆLIR NOTAÐUR SEM RUSLATUNNA

0

Einhver shefur ekki komist í tunnu og því skilið draslið sitt eftir við gjaldmæli Bílastæðasjóðs á horni Vesturgötu og Ægisgötu í 101 R.

Þar hefur það verið svö dögum skiptir, raðað undir mælinn líkt og jólagjafir undir jólatré. Vonandi verður það fjarlægt fyrir jól.

GAMALDAGS Í ÁRBÆ

0

Það verður hátíð í bæ á Árbæjrsafninu á sunnudaginn. Þá vaknar þorpið til lífsins á safninu og gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi í þorpum fyrri tíma.

Gestir munu e.t.v. geta fylgst með þvotti þvegnum á gamlan máta, sem og lyktað af nýbrenndum kaffibaunum. Þá mun harmonikkuleikur óma um þorpið.

Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi.