
Frétt um niðurgan íbúa á Stöðvarfirði sem birtist í DV fyrir rúmum 40 árum gengur nú aftur í Morgunblaðinu. Í báðum tilfellum má rekja pestina til mengunar í vatnsbóli staðarins.
„Hún er á undanhaldi, en við vorum samt að senda út tilkynningu þar sem við mælumst til þess að fólk sjóði vatn áfram, alla vega fram yfir helgi,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar í Morgunblaðinu nú.
Frétt DV um sama vandamál fyrir áratugum var tilfinningaþrungnari í lýsingum héraðslæknisins sem sjálfur var á sjöunda degi í pestinni og líkti veikindunum við fæðingarhríðir.





