Hann rak mann fyrir að vera með nælonbindi og annan fyrir að vera með bólu.
Ævisaga Andrésar prins, sonar Elísabetar II og Filippusar drottningarmanns eftir Andrew Lownie, er væntanleg á markað hinn 14. ágúst nk. Bókin ber titilinn “The Rise and Fall of the House of York” og er sögð síðasti naglinn í líkistu Andrésar sem á sér ekki viðreisnar von. Sá persónuleiki sem sýndur er í bókinni er hrokafullur og sjálfmiðaður. Þá virðist prinsinn, sem gegnir engum konunglegum skyldum lengur, vera í afneitun vegna tengsal sinna við kynferðisglæpamanninn Jeffrey Epstein.
Á „góðri stund“ með félaga sínum Jeffrey Epstein og tveimur ungum konum.
Bókin er uppfull af hneykslissögum um peningaóráðsíu og kynlíf sem hafa valdið bresku konungsfjölskyldunni margvíslegum erfiðleikum. Bókin staðfestir allar sögusagnir um Andrés og gott betur. Sú samlíking er notuð að hún bindi grjóthnullunga um fætur hans og hendi honum út dýpstu mið.
–
Höfundurinn hefur legið í rannsóknum á líferni Andrésar sl. fjögur ár. Nýlega birtist umfjöllun í New York Times þar sem er birt afrit af bréfi Woody Allens sem einnig hefur verið ásakaður um kynferðislega misnotkun en þar staðfestir leikstjórinn að Andrés prins hafi verið gestur í kvöldverðum á glæsiheimili Epsteins á Manhattan í New York. Sagt er frá því hvernig prinsinn fór í skyndi megrúnarkúra þegar hann var að hitta yngri konur. Kúrarnir samanstóðum af steinlausum sveskjum í morgunmat, hráu grænmeti í hádeginu og súpum á kvöldin. Hvorki prinsinn né fyrrum eiginkona hans, Fergie, fá háa einkunn fyrir námshæfileika á sínum yngri árum. Nú um stundir er prinsinn sagður verja tíma sínum í golf, reiðtúra og sjónvarpsgláp. Kvikmyndin um hinn hæfileikaríka herra Ripley er í uppáhaldi hjá honum.
Hin fræga ljósmynd af prinsinum með unglingsstúlkunni Virginu Giuffre og Ghislaine Maxvell sem er sögð tekin við af Jeffrey Epstein..
Einhverjar góðar hliðar á maðurinn en þær eru yfirskyggðar af sögum um ruddaskap og lélega dómgreind. Hann kom illa fram við þjónustufólk, móðgaði og talaði niður til þess. Sendi hann verði út um allar koppagrundir til að leita að golfkúlum og einkaþotur voru leigðar eins og um leigubíla væri að ræða. Hann rak mann fyrir að vera með nælonbindi og annan fyrir að vera með bólu. Vandamál hans í lífinu eru sögð mega rekja til þess að hann er fremur illa gefinn, óöruggur og með lélega dómgreind. Hann hefur notið endalausra forréttinda en klúðrar öllu. Sem smábarn fékk hann viðurnefnið Lilli úrilli.
Í diplómatakreðsum er hann þekktur sem hans hátign fíflið.
–
Þá hefur peningagræðgi hans skaðað ímynd konungdæmisins. Hann hefur komið sér í margvísleg vandræði með því að eiga í viðskiptum við fjárglæframenn, einræðisherra og ekki síst hin frægu tengsl hans við Jeffrey Epstein. Þau samskipti eru rakin rúm fjörutíu ár aftur í tímann. Einhver líkti samskiptunum þeirra við að setja eiturslöngu inn í búr með mús en Epstein styrkti valdastöðu sína með því ná mönnum inn í netið sitt. Hann var t.d. með faldar myndavélar í svefnherbergjunum þar sem perrarnir höfðust við og engin smá nöfn eins og umheimurinn hefur nú fengið spurnir af.
Prinsinum skemmt.
Bill Clinton fór í 26 ferðir með Lolita Express einkaþotu Epsteins á karabísku eyjunni þar sem hann bauð valdamönnum afnot af ungum stúlkum. Þá eru myndir af Andrési prins með Melaníu Trump og Epstein í veislu á Mar-a-Lago setri Trumps í Flórída. Hin fræga ljósmynd af prinsinum með unglingsstúlkunni Virginu Giuffre og Ghislaine Maxvell er sögð tekin af Jeffrey Epstein. Sá síðastnefndi „fyrirfór sér“ í öryggisfangelsi 2019; Ghislaine sem setið hefur í fangelsi undanfarin ár hefur verið flutt í mun óöruggara fangelsi þegar fyrir liggur að nafn Bandaríkjaforseta er í dómsskjölum vegna Epsteins-málsins og Virgina ,,fyrirfór sér“ fyrr á þessu ári. Vangaveltur um allar hliðar þessa máls er að finna í bókinni.
–
Aumingja prinsinn fór illa út úr frægu sjónvarpsviðtali í BBC fyrir mörgum árum og ímynd hans ekki borið sitt barr eftir það. Allt þetta mál kemur illa út fyrir bresku konungsfjölskylduna og reyndar valdafólk víða um heim.
Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...
Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...
Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg:
-
Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...
Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...
Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða.
Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...
Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu:
"Thank...
"Skilti/listaverk eftir Helga Hóseasson (1919-2009) frá 12. september 1995 en gæti allt eins verið dagsett í dag," segir athafnaskáldið Skúli Mogensen og heldur áfram:
-
"Sorglegt...
Ökumaður sem átti leið framhjá Reykjavíkutjörn í gær snarhemlaði, skrúfaði niður rúðuna og smellti af mynd af kvenmanni á Tjarnabakkanum:
"Þetta er kínversk samfélagsmiðlastjarna með...
Á föstudagskvöldið var fyrsta portrettið af Friðriki tíunda Danakonungi afhjúpað í Fredriks Slot í Hilleröd 38 kílómetra norðvestur af Kaupmannahöfn. Verkið er unnið af...
Baldur Már Arngrímsson tónlistarmaður og fyrrum gítarleikari Mannakorn á fréttaskýringu dagsins:
"En öldruð flugfreyja sparkaði í lækni. Það væri frétt."
Hugleikur Dagsson, beittasti blýanturinn í íslensku skopskúffunni, er afmælisbarn dagsins (49). Hann fær óskalagið Mind Games (Hugleikar):
https://www.youtube.com/watch?v=bVYXWVs0Prc