Home Blog Page 82

CHARLIZE THERON (50)

0

Charlize Theron, áður fyrirsæta, efnileg ballerína þar til hné gaf sig og nú í hópi hæst launuðu leikkvenna heims, er afmælisbarn dagsins – orðin fimmtug. Hún hefur handleikið bæði Óskarsstyttu og Golden Globe og er hvergi hætt.

BORGARSTJÓRI REIKNAR

0
„Íbúar Reykjavíkur voru um 140.000 síðastliðin áramót eða um 36% þjóðarinnar. Það er fróðlegt að skoða mannfjölda borgarinnar eftir hverfum. Skoðum 6 áhugaverða punkta,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri:
1. Breiðholtið er fjölmennasta hverfið með um 22 þúsund íbúa sem er meira en íbúafjöldinn á Akureyri.
2. Mesta fjölgunin milli ára átti sér stað í Laugardalnum þar sem rúmlega 19.000 manns búa. Næstmesta fjölgunin átti sér stað í Grafarholtinu og Úlfarsárdal.
3. Í Grafarvoginum búa rúmlega 18.000 manns sem er aðeins minna en í Garðabæ.
4. Í miðborginni búa um 11.000 manns sem er litlu færri en búa í Árbænum eða í Hlíðunum. Í miðbænum búa svipað margir og á Selfossi.
5. Vesturbærinn er með rúmlega 16.000 manns sem er sama og hverfi Háaleitis og Bústaða, eða um helmingur íbúafjölda í Hafnarfirði.
6. Kjalarnesið er fámennasta hverfið með rúmlega þúsund manns, eða álíka og í Bolungarvík.

SECURITAS FÉKK SÉR CARLSBERG

0

Hvar fékk Securitas hugmyndina að vörumerki sínu? Frá Carlsberg.

GRINDHORAÐAR FYRIRSÆTUR TEKNAR ÚR UMFERÐ

0

Eftirlitsaðili með auglýsingum í Bretlandi hefur bannað birtingu fjögurra auglýsinga frá alþjóðlegu verslunarkeðjunni Zöru þar sem fyrirsæturnar séu grindhoraðar. Viðbein ungrar konu í einni auglýsingunni virðast standa út úr líkamanum.

Fyrirtækið svaraði eftirlitsaðilanum og sagði læknisvottorð staðfesta að fyrirsæturnar væru við góða heilsu. Engar kvartanir hefðu borist frá viðskiptavinum og hér væri aðeins um notkun skugga og ljóss að ræða sem skýringu á útliti þeirra á ljósmyndunum. Eftirlitsaðilinn sagði auglýsingarnar óábyrgar og hefur fyrirtækið nú tekið þær úr birtingu.

JÓN ÓLAFSSON (71)

0

Athafnaskáldið og vatnskóngurinn Jón Ólafsson er afmælisbarn dagsins (71). Hann getur litið um öxl á litríkan feril sem tók á sig ýmsar myndir og tekur enn. Eins og þegar hann var kenndur við Skífuna og datt í hug að safna saman helstu tónlistarmönnum landsins og gefa úr metsöluplötu en bandið kallaði hann Brunaliðið. Smellirnir af plötunni lifa flestir enn góðu lífi:

PÁLL ÓSKAR MEÐ VÆNGI Á GAY PRIDE

0

Stórstjarnan Páll Óskar er að gera klárt fyrir Gleðigönguna á Gay Pride á laugardaginn og segir:

„Wiston Duran, systir mín frá Venesúela, er á fullu að hanna þessa vængi fyrir mig. Sjáumst við Hallgrímskirkju kl 14.00 á laugardag þar sem gangan leggur af stað. Pallaball í Gamla Bíói kl 21.00 sama kvöld ásamt dragdrottningunum CRISARTISTA, Lady Bunny & Sherry Vine auk nýjustu poppdívu Íslands, Torfa.“

FRAMSÓKN FINNUR EKKI FORMANN

0

Eftir sögulegt fylgistap Framsóknarflokksins í kosningum sem heldur áfram í skoðanakönnunum leita Framsóknarmenn með logandi ljósi að nýjum formanni enda ólíklegt að Sigurði Inga hugnist að halda áfram.

Þegar Framsóknarmenn eru spurðir er svarið alltaf í sama dúr: – Það er enginn til að taka við.

En Halla Hrund, fallegi forsetaframbjóðandinn? – Hún er ekki Framsóknarmaður.

En Einar Þorsteinsson fyrrum borgarstjóri: – Kannski, kannski ekki.

Fleiri nefndir? – Nei.

SPURNINGUM ARA EI AUÐVELT AÐ SVARA

0
Ari.
Ari.

„Hvenær hófust þessar framkvæmdir? Hvenær lýkur þeim? Hvað hafa þær kostað? Hvaða starfsemi verður í húsinu?“ spyr Ari Sigvaldason ljósmyndakaupmaður á Skólavörðustíg um framkvæmdirnar við Hegninarhúsið á næsta horni við sig. Og bætir við:

„Spurningum Ara ei auðvelt að svara.“

BJÖRN INGI (52)

0

Athafnamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er afmælisbarn dagsins (52). Björn Ingi, stundum nefndur Bingi, er nú aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs formanns Miðflokksins og fær því óskalagið Happy Together.

FUGLAR OG LANDSLAG FRIÐFINNS

0
Friðfinnur og myndirnar.
Friðfinnur og myndirnar.

Friðfinnur Hallgrímsson opnar sýningu í Gallerí Göngum laugardaginn 9. ágúst kl 16-18.

Hann lærði málaralist í Myndlistarskóla Kópavogs í 3 ár og hefur einnig sótt  námskeið hjá Guðfinnu Hjálmarsdóttur myndlistarmanni.

Friðfinnur vinnur alfarið með olíu á striga og eru myndirnar sem valdar eru á þessa sýningu gerðar á árunum 2018 til 2025.

Þetta er önnur sýning Friðfinns. Til sýnis nú eru 30 myndir, aðallega landslagsmyndir en einnig fuglamyndir.