
Friðfinnur Hallgrímsson opnar sýningu í Gallerí Göngum laugardaginn 9. ágúst kl 16-18.
Hann lærði málaralist í Myndlistarskóla Kópavogs í 3 ár og hefur einnig sótt námskeið hjá Guðfinnu Hjálmarsdóttur myndlistarmanni.
Friðfinnur vinnur alfarið með olíu á striga og eru myndirnar sem valdar eru á þessa sýningu gerðar á árunum 2018 til 2025.
Þetta er önnur sýning Friðfinns. Til sýnis nú eru 30 myndir, aðallega landslagsmyndir en einnig fuglamyndir.






