„…finnst þér ekki esjan vera sjúkleg & akrafjallið geðbilað að sjá“ söng Megas í laginu Spáðu í mig.
Svo kemur þetta. Gengið niður Frakkastíg. Esjan er ekki sjúkleg frá þessu sjónarhorni svo ekki sé minnst á Akrafjallið geðbilaða. Horfin.
„…finnst þér ekki esjan vera sjúkleg & akrafjallið geðbilað að sjá“ söng Megas í laginu Spáðu í mig.
Svo kemur þetta. Gengið niður Frakkastíg. Esjan er ekki sjúkleg frá þessu sjónarhorni svo ekki sé minnst á Akrafjallið geðbilaða. Horfin.
Þessa mynd tók Óskar Gíslason (1901-1990) og sýnir múrara hlaða upp veggi og flísaleggja í búningsklefum Sundhallar Reykjavíkur 1936.
Búnngsklefar Sundhallarinnar eru teiknaðir eins og völundarhús af húsameistaranum Guðjóni Samúelssyni og hugmyndin líklega sótt til Kaupmannahafnar þar sem Guðjón nam. Fyrir ekki svo löngu voru enn baðhús þar í borg með eins búningsklefum.
Mini útgáfa af Kaffibarnum í miðbæ Reykjavíkur er komin í sölu. Þetta er fuglahús, hannað af Hjalta Karlssyni hjá Karlsonwilker í New York, listamaður sem hefur sópað að sér verðlaunum í gegnum tína.
Verkið er unnið í samstarfi við húsgagnaverslunina Epal sem fagnar 50 ára afmæli í ár.
Kaffibarinn fuglahús er einnig upptakari og hentar jafnt úti sem inni.

Inga Sæland er afmælisbarn dagsins, 66 ára í dag. Óskabarn þjóðarinnar í hugum margra, rétt kona á réttum stað á réttum tíma. Til hamingju með daginn íslenska þjóð – og Inga auðvitað líka.
„Þrautseigja er það orð sem mér er efst í huga eftir þessa föstudagsnótt,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum eftir óveðrið sem næstum drekkti og feykti brott Þjóðhátíð í Herjólfsdal:
„Það er magnað að fylgjast með öllum þeim sem koma að viðbragði í Dalnum. Allir eru boðnir og búnir til að rétta hjálparhönd. Hópur fólks mættur eldsnemma í Dalinn til þessa að laga það sem skemmdist í nótt og þrífa Dalinn.
Gestir hátíðarinnar eru ótrúlegir og sýna þrautseigju í gegnum þetta allt og eru með skjól í Herjólfshöllinni. Íbúar í Eyjum bjóða fram aðstoð við að þurrka föt og búnað fyrir þjóðhátíðargesti.
Mikið er ég stolt og þakklát fyrir að tilheyra samfélagi sem stendur saman og hjálpast að þegar á móti blæs. Næst er að klára þessa hátíð saman, sjáumst í Dalnum í dag.“
Kvikmyndastjarnan Dennis Quaid sagðist vera í skýjunum, í Paradís, eftir að hann gekk að eiga fjórðu eiginkonu sína, Lauren, um helgina. Dennis er 71 árs, Lauren 40 árum yngri.
Shilajit frá Rússlandi (ekkert innflutningsbann) fæst nú í Lyfjaveri, bæði töflur og olía. Mánaðarskammtur: 18.000 krónur.
Efnið hefur verið notað um aldir í Himalæjafjöllum og víðar í fjallahéruðum í Suðaustur Asíu til heilsubótar, svart, klístrað efni sem verður til þegar plöntur deyja og rotna. Því er trúað að það seinki öldrun, efli kynhvöt og fyrirbyggi krabba.
Kaupmenn í miðbæ Reykjavíkur og víðar hafa lengi veið gagnrýndir fyrir lélegar verðmerkingar og aðrar ef þá einhverjar. Kaupmaðurinn í tóbaksversluninni Björk í Bankastræti er ekki þar á meðal. Hann varar vegfarendur við eigin verslun með áberandi hætti. Lítur vel út.
„Umhverfissverndarsinnar eru komnir út í horn í þjóðfélaginu. Ef þeir hefðu verið til á síðustu öld hefðum við ekki eða fáar hitaveitur, raforkuver, vatnsveitur og fleira,“ segir Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur og áhrifavaldur í samfélagsumræðunni:
„Umhverfisvernd er ekki lengur sjálfsprottin heldur rekin af atvinnufólki í málefninu. Um er að ræða öfgafólk sem hefur gengið lengra og lengra á vit ofstækis eins og gerist í trúarhópum og getur gerst í pólitík. Þá leiðir alltaf sá öfgafyllsti og þeir sem andmæla honum eru svikarar.“
Haukir klykkkir svo út með þessu:
“Og svariði nú ekki með útúrsnúningi, nei, ég vil ekki virkja Gullfoss. Hins vegar var virkjun Laxár í Aðaldal stórfellt framfaraskref á sínum tíma fyrir Þingeyjarsýslu og Eyjafjörð – virkjun sem ekki fengist í gegn núna.“