Eftirlitsaðili með auglýsingum í Bretlandi hefur bannað birtingu fjögurra auglýsinga frá alþjóðlegu verslunarkeðjunni Zöru þar sem fyrirsæturnar séu grindhoraðar. Viðbein ungrar konu í einni auglýsingunni virðast standa út úr líkamanum.
Fyrirtækið svaraði eftirlitsaðilanum og sagði læknisvottorð staðfesta að fyrirsæturnar væru við góða heilsu. Engar kvartanir hefðu borist frá viðskiptavinum og hér væri aðeins um notkun skugga og ljóss að ræða sem skýringu á útliti þeirra á ljósmyndunum. Eftirlitsaðilinn sagði auglýsingarnar óábyrgar og hefur fyrirtækið nú tekið þær úr birtingu.





