Þann 18. ágúst fer árlega Kúmentínslan fram Í Viðey. Kúmenfræin í Viðey eru orðin fullþroskuð til að tína og gestum er boðið í fræðandi uppskeruferð. Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur leiðir tínsluna og segir gestum frá sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey.
Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er.
Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf eða skæri.







