„Ég eignaðist draum árið 1974 þegar ég var 13 ára gamall og það var að eignast Ford Bronco þegar ég yrði eldri,“ segir Guðmundur Guðmundsson handboltasjarna á heimsvísu, þjálfari, leikmaður og allur pakkinn:
„Ég er nú orðinn eldri. Draumurinn rættist, en ég lét hann líka rætast. Skilaboðin frá mér eru, eignist draum og látið hann rætast.“






