Home Blog Page 36

ÞAKKAR KONUNNI FYRIR LAS VEGAS CHRISTMAS SHOW

0

„Margir hafa komið til mín og þakkað mér fyrir Las Vegas Christmas Show í ár,“ segir Geir Ólafsson dægurlagasöngvari og skemmtikraftur og þakkar konunni sinni fyrir að halda þessu gangandi ár eftir ár:

„Hér er konan mín Adriana Patricia Sanches Krieger sem á allan þann heiður að þessi sýning haldi velli og hafi verið haldinn í ár. Hún er það besta sem fyrir mig hefur komið og án hennar væri ekkert af þessu til. Hún gerir alla hluti svo miklu betri. Þakka þér elsku Adriana mín fyrir stuðninginn og trúnna.“

FALLEGT LAUFBLAÐ Í DESEMBER

0

Toppurinn á Skólavörðuholti á einu laufblaði í desember. Vonandi fer ekki að hvessa.

FALLEGUSTU JÓLASKREYTINGARNAR Í REYKJAVÍK

0

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri veitti í gær viðurkenningar fyrir fallegustu jólaskreytingar í miðborg Reykjavíkur. Markmið viðurkenninganna er að hvetja rekstraraðila til að skreyta glugga sína og verslanir á aðventunni og verðlauna þá sem skapa þannig hlýlega, bjarta og hátíðlega stemningu í borginni.

Fallegasta jólaskreytingin

Icemart

Icemart á Skólavörðustíg 38 hlýtur viðurkenninguna fyrir fallegustu jólaskreytinguna í ár. Skreytingin er glæsileg, hlýleg og fellur vel að umhverfinu í hjarta miðborgarinnar.

Fallegasta gluggaskreytingin

Farmers and Friends

Farmers and Friends á Laugavegi 37 hlýtur viðurkenningu fyrir fallegustu gluggaskreytinguna. Glugginn laðar að sér gesti og setur sterkan svip á göngugötuna á aðventunni.

Gleðilegasti barnaglugginn

Café Babalú

Café Babalú fær viðurkenningu fyrir jólaglugga sem getur vakið mikla gleði yngstu kynslóðarinnar. Skreytingin einkennist af litagleði, leikgleði og einstakri jólastemningu sem endurspeglar vel anda staðarins. Jólaskreyting er í augnhæð barna og því mjög gleðileg fyrir þau.

BRENDA LEE (81)

0

Tímaritið Rolling Stone útnefndi hana sem mestu söngkonu allra tíma – Brenda Lee er 81 árs í dag. Hún hljóritaði jólasmell sinn Rocking Around the Christmas Tree 1958, endurútgaf það í fyrra og smellti inn á topplista Billboard Hot 100 og varð þar með elsta manneskja til að tróna þar á toppnum.

JÓLAHLAÐBORÐIN VELTA HUNDRUÐUM MILLJÓNA

0

Jólahlaðborð og tengdar uppákomur eru hvalreki fyrir veitingasali hótela í Reykjavík sem sum velta hundruðum milljóna á aðventunni.

Hilton hótelið á Suðurlandsbraut er vinsælt í jólahlaðborðunum og velti veitingasalur staðarins 240 milljónum í síðasta mánuði. Parliament hótelið við Austurvöll velti á sama tíma 90 milljónum. Að stórum hluta til jólahlaðborðunum að þakka.

LILJA PÁLMA (58)

0

Lilja Pálmadóttir hrossaræktandi á Hofi á Höfðaströnd er afmælisbarn dagsins (58). Lilja hefur náð frábærum árangri í hrossarækt og var verðlaunuð af Fáki fyrir hæst dæmda stóðhest ársins í haust – sjá hér.

ÍSLENSKU SEN SJÓNVARPSTÆKIN FRÁ JÓNI SEN – FRAMLEIDDI 3000 STYKKI

0

Sex árum áður en Ríkissjónvarpið hóf sína fyrstu útsendingu, um 1960, fór Jón Sen, fyrstur Íslendinga, að framleiða sjónvarpstæki hérlendis undir eigin nafni. Jón var fiðluleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en meðfram því starfaði hann sem rafeindavirki. Efniviðinn fyrir tækin fékk hann frá Philips-verksmiðjunni en hann framleiddi um 3000 tæki á verkstæði sínu við Suðurlandsbraut. Sjónvarpstækin nutu sérstakra vinsælda því SEN-tækin náðu útsendingum á bæði sjónvarpskerfin sem voru hér í notkun, evrópska kerfið fyrir íslenskt sjónvarp og það bandaríska sem var með útsendingar fyrir varnarliðið í Keflavík. Hönnunarsafn Íslands á eitt SEN-sjónvarpstæki. Það er af gerðinni SEN-147 og var keypt á árunum 1964–1967 hjá O. Johnson & Kaaber. Framleiðslu á SEN-tækjum lauk árið 1968.

Jón fæddist á eyjunni Amoy í Kína og ólst þar upp til þrettán ára aldurs. Faðir hans var Kwei-Ting Sen (1894–1994), prófessors í uppeldis- og sálarfræðum og rektors háskólans í Amoy og síðar prófessors við háskólann í Shanghai, og Oddnýjar Erlendsdóttur Sen (1889–1963) frá Álftanesi, síðar kennara við Kvennaskólann í Reykjavík.

Jón fluttist með móður sinni og systur til Íslands árið 1937 eftir innrás Japana í Kína og hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík og Tónlistarskólann í Reykjavík, en þaðan útskrifaðist hann árið 1945. Hann vann fyrir sér með því að taka ljósmyndir og tók meðal annars myndir á lýðveldishátíðinni á Þingvöllum árið 1944. Hann fór í framhaldsnám í fiðluleik við The Royal Academy of Music í London og settist að í Reykjavík að loknu námi.

NÝIR LJÓSMYNDARAR LÍTA DAGSINS LJÓS – ÚTSKRIFTARSÝNING

0

Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans opnar 12. desember í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Tryggvagötu og stendur til 11. janúar – ókeypist aðgangur.

Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2025.

Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum.

Útskriftarnemendur: Elva Þrastardóttir, Gunnar Ragnarsson, Lilja Birna Arnórsdóttir, Íris Hadda.

ÞÓRA VARAMAÐUR RÁÐHERRANS – VAR Í FJÓRÐA SÆTI Á LISTA

0

Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í morgun að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, yrði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni.

Athygli vekur að Þóra Gunnlaug Briem tekur sæti hans á meðan en hún var í fjórða sæti á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi. Í öðru sæti á eftir ráðherranum var Jónína Óskarsdóttir eldri borgari og í því þriðja Sigurður Tyrfingsson fasteignasali og húsasmíðameistari. Þau eru ekki kölluð til.

NÝJA INNRAUÐA SAUNAN SLÆR Í GEGN – EINS OG AÐ REYKJA LÉTTA JÓNU

0

Húsmóðir í Vesturbænum skrifar:

Mikið er nýja innrauða saunan í Vesturbæjarlaug góð. Þarna situr maður í fallegri birtu í þögn og félagsskap og hitnar hægt og rólega að innan þar til næstum alsælu er náð fyrirhafnarlítið. Minnir mig helst á þegar ég reykti einu sinni létta jónu á útimarkaði í Kaupmannahöfn mér til mikillar undrunar. Þakka ber fallega borgarstjóranum okkar fyrir þetta framtak. Þetta er mikil menningarauki í Vesturbænum og góð viðbót við Melabúðina og Kaffi Vest. Lifi Vestrið!