Jólahlaðborð og tengdar uppákomur eru hvalreki fyrir veitingasali hótela í Reykjavík sem sum velta hundruðum milljóna á aðventunni.
Hilton hótelið á Suðurlandsbraut er vinsælt í jólahlaðborðunum og velti veitingasalur staðarins 240 milljónum í síðasta mánuði. Parliament hótelið við Austurvöll velti á sama tíma 90 milljónum. Að stórum hluta til jólahlaðborðunum að þakka.







