Home Blog Page 35

GJAFIR TIL SJÁVAR OG SVEITA – POP UP Á GRETTISGÖTU

0

Örn Smári Gíslason er með pop up á vinnustofu sinni á Grettisgötu 3 (í portinu).

Gjafir til sjávar og sveita og vinnustofan er listaverk út af fyrir sig. Sjón er sögu ríkari.

Sjá meira á Instagram – ornsmari.

GEGGJAÐAR HUNDAKÁPUR HJÁ GUÐSTEINI

0

Verslun Guðsteins í Ármúla er með geggjaðar hundakápur til sölu fyrir jólin. Hundarnir verða líka að fá pakka.

SÆDÍS EYÐIR 500-700 ÞÚSUNDUM Í JÓLAGJAFIR

0

Morgunblaðið spyr í dag fólk á förnum vegi hvað það ætli að kaupa margar jólagjafir og fyrir hvað mikið.

Sædís Magnúsdóttir segist gefa 20-30 gjafir og eyða í það 500-700 þúsund krónum. Aðrir eru á lægri nótum:

DICK VAN DYKE (100)

0

Bandaríski leikarinn og skemmtikrafturinn Dick Van Dyke fæddist í West Plains í Missouri í Bandaríkjunum fyrir 100 árum. Hann er enn meðal vor og er með skýringu á því á reiðum höndum:

„Ég lostaði mig við áfengi og tóbak og allt það stöff og þess vegna er ég líklega enn hér.“

GUNNAR SMÁRI VILL DEYJA Á SÓLVANGI Í HAFNARFIRÐI

0

„Ég fæddist á Sólvangi eins og margt fólk, löngu áður en húsinu var breytt í hjúkrunarheimili. Og á mér þann draum að fá að deyja í sama herberginu og ég fæddist í,“ segir Gunnar Smári fjölmiðlamaður og pólitíkus að gefnu tilefni:

„Nú þekki ég ekki til á Sólvangi, en datt í hug að einhver þar kunnugur gæti komist að því í hvaða herbergi börn fæddust og hvort ég fái að sofa þar þegar ég næ hárri elli. Og á endanum sofna svefninum langa; gefa upp öndina í rúminu þar sem ég dró fyrst andann.“

Tilefnið: Í Ríkissjónvarpinu var frétt um 75 ára gamlan draum Kristínar Guðnadóttur um að sjá aftur dansinn vefarinn, sem hún hafði dansað á húsmæðraskólanum að Laugum. Draumurinn rættist á Sólvangi þar sem Kristín býr.

JÓLAGETRAUN – HVAÐ ER ÞETTA?

0

Svar: Jólaljós á svölum fjölbýlishúss í Tryggvagötu í Reykjavík 101. Allt í stíl.

ÓMISSANDI Í 73 ÁR

0

Litlar niðursoðnar gulrætur eru ómissandi með jólamatnum segir í tilkynningu frá niðursuðuversksmiðjunni ORA sem stofnuð var 1952 og er enn hluti af íslensku jólahaldi.

ÓLÍNA LEIÐRÉTTIR JÓLASVEINAVÍSUNA

0
„Svona lærði ég jólasveinavísuna af mömmu, en heyri hana eiginlega adrei sungna þannig – því miður,“ segir Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir. Hér er vísan:
Jólasveinar ganga um gátt
með gildan staf í hendi,
móðir þeirra hrín við hátt
og hýðir þá með vendi.
Upp á stól
stendur mín kanna.
Níu nóttum fyrir jól
fer/kem ég til manna.

FRANK SINATRA (110)

0

Fæðingardagur Frank Sinatra (1915-1998) sem hefði orðið 110 ára í dag. Jólabarn í desember og þess vegna eitt jólalag:

ESJAN Á 600.000 Í GAMLA LANDSBANKANUM

0

Arna Bjartmarsdóttir fór á opnun listsýningar Sigurðar Sævars í gamla Landsbankahúsinu við Austurstræti. Þar hitti hún meðal annarra Ármann Reynisson vinjettuhöfund og viðskiptamann hjá íslenska Gullmarkaðnum ásamt Sigríði Rögnu Birgisdóttur spænskukennara og flugfreyju.

„Tók þessa skemmtilegu mynd af þeim fyrir framan eitt af nýstárlegustu verkum Sigurðar Sævars af drumkenndri sýn Esjunnar. Ásett verð verksins er 600.000 krónur,“ segir Arna sem skemmti sér vel eins og þau.