Arna Bjartmarsdóttir fór á opnun listsýningar Sigurðar Sævars í gamla Landsbankahúsinu við Austurstræti. Þar hitti hún meðal annarra Ármann Reynisson vinjettuhöfund og viðskiptamann hjá íslenska Gullmarkaðnum ásamt Sigríði Rögnu Birgisdóttur spænskukennara og flugfreyju.
„Tók þessa skemmtilegu mynd af þeim fyrir framan eitt af nýstárlegustu verkum Sigurðar Sævars af drumkenndri sýn Esjunnar. Ásett verð verksins er 600.000 krónur,“ segir Arna sem skemmti sér vel eins og þau.






