„Margir hafa komið til mín og þakkað mér fyrir Las Vegas Christmas Show í ár,“ segir Geir Ólafsson dægurlagasöngvari og skemmtikraftur og þakkar konunni sinni fyrir að halda þessu gangandi ár eftir ár:
„Hér er konan mín Adriana Patricia Sanches Krieger sem á allan þann heiður að þessi sýning haldi velli og hafi verið haldinn í ár. Hún er það besta sem fyrir mig hefur komið og án hennar væri ekkert af þessu til. Hún gerir alla hluti svo miklu betri. Þakka þér elsku Adriana mín fyrir stuðninginn og trúnna.“







