Þegar Bifreiðar og laundbúnaðarvélar (nú BL) hófu innflutning á Moskvich bílum frá Rússlandi upp úr miðri síðustu öld í skiptum fyrir síld og tólg rættist draumur íslenskrar alþýðu að eignast nýjan bíl.
Verðið var gott, hann var auglýstur vel og reyndist góður á íslenskum malarvegum – alger draumur á meðan var.
Fæðingardagur Ludwig van Beethoven (1770-1827). Það stirnir á nafnið í mannkynsssögunni þar sem Beethoven trónir á toppnum með öðrum sem þótt hafa hinir bestu. Hann fær óskalagið Roll Over Beethoven með Chuck Berry
Í dag fagnar Framsókn 109 ára afmæli sínu, elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins með 12.000 félaga. Boðið var upp á gómsæta tertu í tilefni dagsins á þingflokksfundi þar sem þingmenn flokksins (5) eru í óða önn að klára þingstörfin fyrir jól.
Benny Andersson, eitt Béið í Abba, er afmælisbarn dagsins (79). Benny er líklega mesti músíkantinn í Abba og hefur gefið þar tóninn frá upphafi. Hann leikur nú í fristundum með eigin hljomsveit – Benny Andersson Orkester með söngkonunni Helenu Sjöholm:
Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins er afmælisbarn dagsins (49). Hann hefur lengi verið á kafi í fiski austur á Eskifirði og fær því óskalagið Ship-O-Hoj:
Friðrik Schram fyrrum prestur Íslensku Kristskirkunnar var hakkaður á Facebook og heitir þar nú Ivonne Daufenbach:
„Ég var hakkaður síðastliðin laugardag. Myndin er af mér en nafnið er falsað. Það verður fjarlægt eftir tvo mánuði og mitt sett inn á ný. Facebókarreikningurinn er í lagi að öðru leyti,“ segir Friðrik og situr uppi með Ivonne Daufenbach fram í febrúar.
Leikkonan Saga Garðarsdóttir eldar aldrei á sínu heimili en maðurinn hennar, tónlistarmaðurinn og sælkerinn Snorri Helgason, eldar hreinlega alltaf fyrir fjölskylduna. Saga strengdi áramótaheit um síðustu áramót þar sem hún sagðist ætla að elda þrjár máltíðir árið 2025 en hún á eftir að elda tvær máltíðir.
Vala Matt heimsækir þau hjón í Íslandi í dag á Sýn strax eftir fréttir.
Þetta er Smjörhúsið sem upphaflega reist að Hafnarstræti 22 í Reykjavík af Bjarna riddara Sivertsen kaupmanni árið 1797. Austari hluti hússins var útibú verslunar hans í Hafnarfirði og vestari hlutinn íbúð verslunarstjórans.
Árið 1909 var Hafnarstræti 22 selt og þá umbreytt í nýtískulegt verslunarhúsnæði undir merkjum danska stórfyrirtækisins Irma. Það nefndist þá strax Smjörhúsið enda smjör, smjörlíki og annað feitmeti meðal þess helsta sem þar var á boðstólum og var heitið málað stórum stöfum á framhliðina. Húsið var rifið 1987 en hefur nú verið endurbyggt í miðbæ Selfoss.
En þarna þarna í Hafnarstræti gekk á ýmsu eins sog Snorri G. Bergsson kann frá að segja:
„Danskur eigandi Smjörhússins lenti í vandræðum því að hann skildi ekki að eftir 1918 giltu aðeins íslensk lög á Íslandi. Því gat hann ekki haft heimili í Köben og greitt þar alla skatta sína, heldur varð hann að greiða löglega skatta af Smjörhúsinu á Íslandi og af tekjum sínum hér. Þetta fór fyrir dómstóla og þar reyndi Einar Arnórsson, fyrrum ráðherra, að útskýra þetta fyrir honum en það gekk erfiðlega. Daninn kvartaði við skattyfirvöld í Danmörku, minnir mig, en ég held að þar hafi tekist að útskýra þetta fyrir honum. Selstöðukaupmenn voru ekki lengur löglegir á Íslandi.“
Smjörhúsið hefur verið endurbyggt í miðbæ Selfoss og í því er að finna barnafataverslunina Hlaðan og verslunina Tiger auk íbúða á efri hæð.