Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg:
–
Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg:
–
“Blaðamennska hækkar engan í launum en blaðamenn hækka í launum með því að sinna upplýsingamiðlun ríkisins,” segir Þórhallur Gunnarsson margreyndur fjölmiðlamaður sem veit hvað klukkan slær þegar Logi ráðherra reynir að plástra bransann sem er að blæða út.
Þessi reykvíska þokkadís fagnar jólum á Möltu, suður af Sikiley og rétt undan ströndum Afríku, en þar hefur fjárhúsinu í Betlehem verið komið fyrir í fullri stærð út á götu.
„Þetta er jólalegt,“ sagði hún ánægð í höfuðborginni Valetta sem er sú minnsta í Evrópu og suðlægasta. Vinsamlegir íbúar, allir tala ensku, snekkjur auðjöfra liggja stífbónaðar við festar, hinsegin fólk áberandi og kannabisbúðir sjálfsagðar – enda lögleglegar.
„Paradis Evrópu,“ bætti fyrirsætan við.
Megas hefur sent frá sér nýtt lag, reyndar sálm til styrktar starfi Hjálpræðishersins. Honum til aðstoðar eru Magga Stína og Hilmar Örn Agnarsson. Lagið er í anda Hersins og í texta segir:
Ég hef hengt jakkann minn
í Jesú fatahengið
heimslystar hálsklútinn
í herrans sal inn gengið …
–
Megas varð áttræður í apríl og hefur dvalið á Grund síðistu misserin.
Súperstjarnan Jane Fonda er afmælisbarn dagsins, 88 ára og enn í fullu fjöri. Kvikmyndaferill hennar spannar rúmlega sex áratugi og með hefur fylgt heimsfrægt líkamsræktarkerfi sem varð ofurvinsælt í sjónvarpi og á videói og gallhörð kvennréttindabrátta sem síðar fékk nafnið femínismi. Hér syngur hún með vinkonu sinni í sjónvarpsþætti:
Fjöldi hjólandi vegfarenda Reykjavík hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin tíu ár og nú á að bæta um betur og gefa í. Bætt verður við fjórum kílómetrum af hjólastígum á næsta ári og verða þeir þá orðinir 50 kílómetrar.
Áætlað er að hefja framkvæmdir við stíga við Suðurfell í Breiðholti, Vínlandsleið í Grafarholti og í Elliðaárdal í stað stokks. Til viðbótar verður haldið áfram við gerð stíga í Skógarhlíð og við Arnarnesveg.
Formaður Pírata, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, leitar ráða hjá Svandísi Svavarsdóttur fráfarandi formanni Vinstri grænna á Kaffivagnninum á Granda í dag.
Svona gerast kaupin á eyrinni.
Gítarleikari Rolling Stones er afmælisbarn dagsins. Keith Richards er orðinn 82 ár og enn í fullu fjöri. Hann er ekki aðeins gítarleikari Rollingana heldur einnig meðhöfundur flestra laga sveitarinnar ásams æskuvini sínum, Mick Jagger. Hér tekur hann létt sóló: