Fjöldi hjólandi vegfarenda Reykjavík hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin tíu ár og nú á að bæta um betur og gefa í. Bætt verður við fjórum kílómetrum af hjólastígum á næsta ári og verða þeir þá orðinir 50 kílómetrar.
Áætlað er að hefja framkvæmdir við stíga við Suðurfell í Breiðholti, Vínlandsleið í Grafarholti og í Elliðaárdal í stað stokks. Til viðbótar verður haldið áfram við gerð stíga í Skógarhlíð og við Arnarnesveg.







