Megas hefur sent frá sér nýtt lag, reyndar sálm til styrktar starfi Hjálpræðishersins. Honum til aðstoðar eru Magga Stína og Hilmar Örn Agnarsson. Lagið er í anda Hersins og í texta segir:
Ég hef hengt jakkann minn
í Jesú fatahengið
heimslystar hálsklútinn
í herrans sal inn gengið …
–
Megas varð áttræður í apríl og hefur dvalið á Grund síðistu misserin.







