Þessi reykvíska þokkadís fagnar jólum á Möltu, suður af Sikiley og rétt undan ströndum Afríku, en þar hefur fjárhúsinu í Betlehem verið komið fyrir í fullri stærð út á götu.
„Þetta er jólalegt,“ sagði hún ánægð í höfuðborginni Valetta sem er sú minnsta í Evrópu og suðlægasta. Vinsamlegir íbúar, allir tala ensku, snekkjur auðjöfra liggja stífbónaðar við festar, hinsegin fólk áberandi og kannabisbúðir sjálfsagðar – enda lögleglegar.
„Paradis Evrópu,“ bætti fyrirsætan við.






