„Ég fæddist á Sólvangi eins og margt fólk, löngu áður en húsinu var breytt í hjúkrunarheimili. Og á mér þann draum að fá að deyja í sama herberginu og ég fæddist í,“ segir Gunnar Smári fjölmiðlamaður og pólitíkus að gefnu tilefni:
„Nú þekki ég ekki til á Sólvangi, en datt í hug að einhver þar kunnugur gæti komist að því í hvaða herbergi börn fæddust og hvort ég fái að sofa þar þegar ég næ hárri elli. Og á endanum sofna svefninum langa; gefa upp öndina í rúminu þar sem ég dró fyrst andann.“
–
Tilefnið: Í Ríkissjónvarpinu var frétt um 75 ára gamlan draum Kristínar Guðnadóttur um að sjá aftur dansinn vefarinn, sem hún hafði dansað á húsmæðraskólanum að Laugum. Draumurinn rættist á Sólvangi þar sem Kristín býr.






