Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í morgun að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, yrði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni.
Athygli vekur að Þóra Gunnlaug Briem tekur sæti hans á meðan en hún var í fjórða sæti á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi. Í öðru sæti á eftir ráðherranum var Jónína Óskarsdóttir eldri borgari og í því þriðja Sigurður Tyrfingsson fasteignasali og húsasmíðameistari. Þau eru ekki kölluð til.







