Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans opnar 12. desember í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Tryggvagötu og stendur til 11. janúar – ókeypist aðgangur.
Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2025.
Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum.
Útskriftarnemendur: Elva Þrastardóttir, Gunnar Ragnarsson, Lilja Birna Arnórsdóttir, Íris Hadda.






