Húsmóðir í Vesturbænum skrifar:
–
Mikið er nýja innrauða saunan í Vesturbæjarlaug góð. Þarna situr maður í fallegri birtu í þögn og félagsskap og hitnar hægt og rólega að innan þar til næstum alsælu er náð fyrirhafnarlítið. Minnir mig helst á þegar ég reykti einu sinni létta jónu á útimarkaði í Kaupmannahöfn mér til mikillar undrunar. Þakka ber fallega borgarstjóranum okkar fyrir þetta framtak. Þetta er mikil menningarauki í Vesturbænum og góð viðbót við Melabúðina og Kaffi Vest. Lifi Vestrið!







