Lífskúnstnerinn Helgi Jean Claessen er afmælisbarn dagsins (44). Hann hefur marga fjöruna sopið en heldur upp á tímamótin með útgáfu bókar sem hann hefur verið átta ár að skrifa – Helga Hjarta. Hann fær óskalag með Jan & Kjeld; Banjo Boy:
Lífskúnstnerinn Helgi Jean Claessen er afmælisbarn dagsins (44). Hann hefur marga fjöruna sopið en heldur upp á tímamótin með útgáfu bókar sem hann hefur verið átta ár að skrifa – Helga Hjarta. Hann fær óskalag með Jan & Kjeld; Banjo Boy:
Í dag eru 45 ár frá því að John Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt í Dakota byggingunni á Manhattan í New York. Hann var á leið heim með Yoko konu sinni eftir vinnu í hljóðveri þegar Mark Chapman beið hans með byssu. Nokkrum klukkustundum áður hafði Lennon áritað plötu sína, Double Fantasy, fyrir Chapman sem beið síðan færis. Minningin lifir.
–
Biskupinn yfir Íslandi prýðir forsíðu jólablaðs Húsfreyjunnar og gerir það með stæl.
Ljóðskáldið og rokksöngvarinn Jim Morrison hefði orðið 82 ára í dag en hann lést í París tæplega þrítugur eftir að hafa lyft hljómsveit sinni Doors upp í hæstu hæðir. Grafreitur hans í París hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna allt frá því að hann var lagður þar til hinstu hvílu.
Útvarpsmaðurinn Markús frá Djúpalæk fór með Bertu konu sinni á kokteilbarinn Tipsy í Hafnarstræti um helgina þar sem þeir voru skömmuð eins og hundar af þjóni:
„Þjónninn ávítaði okkur eins og óþæga krakka fyrir að færa glös af okkar borði yfir á næsta, þar sem enginn sat. Auk þess tók þjónninn vatnsflöskuna okkar, kláraði ekki að hreinsa af borðinu og datt ekki í hug að spyrja hvort við ætluðum að panta eitthvað,“ segir Markús sem lét nokkur ákveðin en kurteisleg orð falla þegar þau yfirgáfu Tipsy.
Tíminn líður – athafnakonan, rithöfundurinn og opinberi starfsmaðurinn Tobba Marinós er 41 árs í dag. Hún fær óskalagið Tutti Frutti:
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur aldrei litið betur út eftir að hann lét sér vaxa grásprengt alskegg og dressaði sig upp í svart. Hann vakti óskipta athygli á skemmtun í Austurbæ í vikunni þar sem hann dansaði í góðum takti upp á sviði eins og enginn væri morgundagurinn.
„Hann er hot,“ sagði ung dama í salnum.
Louis Prima (1910-1978) er afmælisbarn helgarinnar. Fæddur í New Orleans en ræturnar á Ítalíu og þó hann hefði ekki gert annað en að syngja Buona Sera þá hefði það verið nóg.