Home Blog Page 38

SIGURBJÖRN Í KLÚBBNUM 100 ÁRA – MINNING AFASTRÁKS

0

Sverrir Einar Eiríksson, athfnamaður, gullsali, hótelhaldari, vínsali, veitingamaður ofl. minnist afa síns sem hefði orðið 100 ára í dag:

Í dag hefði afi minn, Sigurbjörn Eiríksson í Glaumbæ og Klúbbnum, orðið 100 ára.
Afi var maður sem setti mark sitt á heila öld. Hann var frumkvöðull, drífandi og óhræddur við að fara sínar eigin leiðir á tíma þegar fáir þorðu að hugsa stórt. Hann tók við litlum skemmtistað og byggði upp Glaumbæ — sem varð eitt stærsta og vinsælasta samkomuhús landsins. Síðar kom Klúbburinn í Borgartúni, sem margir muna enn með nostalgíu og brosi.
Hann skapaði vettvang fyrir tónlist, dans, vináttu, ungt fólk og lífsgleði. Margir segja að hann hafi mótað íslenskt næturlíf á sjötta og sjöunda áratugnum — og sagan geymir bæði sterkar minningar og litríkar sögur af stöðunum hans.
Afi var sterkur karakter, ákveðinn og óbugandi. En sagan hans var líka flókin — eins og oft hjá þeim sem bera mikla ábyrgð og taka stórar ákvarðanir. Hann þurfti að kljást við áskoranir, deilur, gagnrýni og dóma; hann lenti í miklum mótvind á köflum. En þrátt fyrir það hélt hann áfram að standa upp, vinna, byggja og skapa.
En fyrir mig var hann fyrst og fremst afi. Hlýr, tryggur og sterkur. Maður sem kenndi okkur að vinna hörðum höndum, standa með okkar fólki og gefast aldrei upp — sama hvað.
Hann var öryggi, heiðarleiki og styrkur í lífi mínu, og minningin um hann lifir í hjartanu.
Hundrað ár frá fæðingu hans — og hann er enn hluti af mér.
Við berum með okkur söguna hans, styrkinn hans og sporin sem hann skilur eftir.
Minnistæðasta setningin hans:
„Það er sama hversu nóttin er dimm eða veturinn harður — það kemur nýr dagur og sumar.“

HARPAN HEILLAR – „ÞESSI FER Á JÓLAKORTIÐ Í ÁR“

0

Harpan komin í jólabúning og heillar ferðamenn. Líklega vinsælasta myndefnið sem þeim býðst í bænum og skákar þar með Hallgrímskirkju.

Einn frá Japan tók þessa mynd og sagði: „Þessi fer á jólakortið í ár.“

Á FRÍVAKTINNI

0

„Á frívaktinni“ heitir þessi mynd Ara Sigvaldasonar ljósmyndakaupmanns á Skólavörðustíg, tekin í gegnum búðarglugga á Laugavegi eftir lokun.

HÖFNUN ER BARA PRENTVILLA – GUÐMUNDUR ANDRI EKKI TILNEFNDUR

0
Guðmundur Andri Thorsson er ekki tilefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár og lætur um það falla nokkur orð:
„Einhvern tímann þegar bók eftir mig var ekki tilnefnd til verðlauna – sem ég hafði þó gert mér vonir um – þá var til í kollinum á mér dálítil vísa sem var á þessa leið, minnir mig:
Lengi á lagernum dvelst,
lítið í búðunum selst,
ekki til verðlauna velst,
varla til bókmennta telst.
Sniðgenginn, enn einn ganginn. Þessu að sýsla við bókmenntir og bókagerð getur fylgt sterk og margítrekuð höfnunarkennd og tækifærin til að upplifa slíkt óteljandi, gefi maður sig henni á vald. Það á maður ekki að gera. Þegar höfnunarkenndin breiðir úr sér innra með manni á maður að bera strax kennsl á hana, binda hana í fjórar (eða þrjár eða sex, ekki fleiri) línur og henda henni á tilfinningahaugana og sjá til þess að hún haldi sig þar…
…bókmenntir eru lífshorf, sérstök afstaða, sérstök aðferð við að horfa á heiminn og lifa í honum, upplifa atvik, kenndir og fólk og fanga í orð. Höfnun er eiginlega bara stafavíxl: ‘un’ í orðinu ‘höfundur’ hefur víxlast; höfnun er bara prentvilla.“

DISNEY (124)

0

Fæðingardagur Walt Disney (1901-1966). Skapari Andrésar Andar og Mikka Mús sem urðu undirstaða Disney veldisis sem enn stendur í blóma sem aldrei fyrr í skemmtanaiðnaði  heimsins. Hér tekur Andrés lagið:

ÁRSÆLL SKÓLAMEISTARI EKKI FÓRNARLAMB RÁÐHERRA

0
„Guðmundur Ingi átti ekki neinn skynsamlegan möguleika á að skipa Ársæl Guðmundsson til annarra 5 ára – án auglýsingar,“ segir Benedikt Sigurðarson þrautreyndur skólamaður, fyrrum skólastjóri Barnaskóla Akureyrar, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri og með meistarapróf í stjórnun og stjórnsýslu skóla frá háskóla Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada árið 1996.
„Í fyrsta lagi var augljós spillingarbragur á því þegar Ársæll var ráðinn í Borgarholtsskóla – – enda mælti skólanefndin einróma með öðrum umsækjanda – og einn skólanefndarmaður taldi sig knúinn til að segja af sér í nefndinn vegna þessa.
Í öðru lagi hefur Ársæll á sér þekktan pólitískan-plottskaða – sem meðal annars tryggði honum stöðuna þar sem hann hefur áður unnið „sérkennilega“ á jöðrum hins faglega. Þannig að það er bókstaflega ósatt að hann „sé á einhvern hátt óumdeildur sem fagmaður“ þótt hann hafi mætt í vinnuna sína og skilað afköstum.
Í þriðja lagi þá framdi Ársæll alvarlegt trúnaðarbrot gagnvart barni sem glataði skóm – og meistarinn útbásúnaði tveggja manna (trúnaðar)samtal – sama hver er amma barnsins og sama hvað hún kynni hafa að hafa sagt vanhugsað. Slík frásögn meistarans er í besta falli slúður – og ekki öllu merkilegri vitnisburður um tveggja manna tal.
Það hefði ótvírætt verðskuldað áminningu að mínu mati – og hrein hörmung að meistarinn hafi ekki einu sinni séð sóma í að segja sorrý.
Meistarinn lætur nú í veðri vaka að hann hafi verið rekinn eða vikið til hliðar – sem er bókstaflega ósatt – og fjölmiðlarnir spinna ótrúlega þvælu útfrá innanhússpósti meistarans.
Guðmundur Ingi áformar breytingar á framhaldsskólakerfinu og um þær kunnum við ráðherrann og ég að vera algerlega ósammála. En Ársæll velur sjálfur hvort eða hvernig hann leggur að mörkum til skólastefnu og framtíðar Borgarholtsskóla – en mér er til efs að þetta bréf hans til starfsmanna sé gott innlegg í næstu missirin í starfi Borgarholtsskólans . .
Ársæll Guðmundsson skólameistari í Borgarholtsskóla er ekki fórnarlamb Guðmundar Inga Kristinssonar ráðherra – bara alls ekki.“

FORRÉTTABARINN MEÐ ÚTIBÚ Á FRAKKASTÍG

0
Forréttabarinn verður 15 ára á næstunni og fagnar tímamótunum með öðrum stað. Opna á Frakkastíg fyrir austan læk í janúar og bjóða nýja sem gamla vini innilega velkomna.

JÓLASTRESS ER GERVISTRESS

0

„Flest þurfum við minna áreiti og minni streitu í líf okkar. Því miður eru jólin tími mikillar streitu. Það eru þó ekki jólin sjálf sem valda óróleika í líkamanum heldur gervitakturinn sem hefur smám saman verið lagður ofan á þau,“ segir Auður Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur í hugleiðingu í Morgunblaðinu á aðventunni:

„Ljósin, lögin og gleðin eru ekki.vandinn. Þvert á móti. Vandinn er þegar gervihávaðinn yfirgnæfir hið lifandi. Þegar jólin verða stöðugt ástand í markaðskerfinu í stað tímabils í lífinu. Þá fer hjartað að slá í takt við auglýsingar í stað árstíða.

Kannski felst ein einfaldasta forvörnin gegn „hjartsláttartruflunum“ jólanna ekki í því að slökkva á jólunum, heldur að velja þau meðvitað. Velja ljós en ekki flóðlýsingu. Velja lög en ekki stöðugan hávaða. Og velja lifandi tré í stað eftirlíkingar. Þá fær hjartað að slá í þeim hæga, stöðuga takti sem jólin eiga í eðli sínu að geyma.“

RÚV VERÐUR RAUÐ EINS OG SÝN

0

Fréttatímar Ríkissjónvarpsins, íþróttir og veður eru komnir með rauðan bakrunn líkt og verið hefur hjá Sýn frá upphafi. Áður og lengi notaðist RÚV við bláan bakgrunn sem nú er horfin.

Ekki svo að skilja að Ríkissjónvarpið sé að elta valdhafa hverju sinni nú þegar Samfylkingin stýrir landinu með sinn rauða flokkslit og Sjálfstæðisflokkurinn úti í kuldanum með sinn bláa. En rautt er það nú

ÓLAFUR ÓSKAR ARKITEKT OG PABBI VÍKINGS HEIÐARS (74)

0

Ólafur Óskar Axelsson arkitekt og faðir píanósnillingsins Víkings Heiðars er afmælisbarn dagsins (74). Ólafur Óskar er einnig flinkur píanóleikari og tónskáld eins og hér má sjá og heyra – Tjúttað heima og erlendis: