Það vantar blóð í alla flokkana. Sjálfstæðisflokkinn, Miðfokkinn, Framsókn osfrv…
NÚ RÆSUM VIÐ VÉLARNAR
„Nú ræsum við vélarnar,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og ráðherrarnir brosa breitt á mynd sem tekin var á Arnarhóli í dag:
„Lögum vegina og byrjum aftur að bora jarðgöng á Íslandi. Ég er stolt af nýrri samgönguáætlun innviðaráðherra og langþráðu samkomulagi um stofnun innviðafélags til að flýta stærri samgönguframkvæmdum. Það er búið að tala um þetta lengi. En nú er það loksins að gerast.“
KLIKKUÐ FLUGUMFERÐ Í USA
Flugumferðin í Bandaríkjunum aðfranótt þriðjudagsins 1. desember. Verri en bílaumferðin í Reykjavík á háannatíma.
KRÓNAN RÝRNAÐ UM 99,98%
ANDY WILLIAMS (1927-2012)
Fæðingardagur Andy Williams (1927-2012), dægurlagasöngvarans með flauelsröddina sem heillaði bandarisku þjóðina og heiminn allan. Gaf út 43 plötur á 70 ára ferli, þar af 15 gullpötur, og seldi í allt 45 milljónir eintaka. Flauelsrödd hans hljómaði á tónleikum allt fram í andlátið þegar blöðruhálskirtillinn felldi hann 84 ára gamlan.
ANNA MARÍA SITUR UPPI MEÐ RJÚPUR – VERÐUR AÐ GEFA
„Einhver hér sem vantar rjúpur?“ spyr Anna María McCrann vini sína á Facebook tilbúin að selja en þá grípur Linda Björk Holm í taumana:
„Það er bannað að selja rjúpur, þú mátt gefa en ekki selja.“
Anna María: „Takk fyrir að vekja athygli á því elsku hjarta – vissi það ekki.“
TEYMI ER HALLÆRISLEGT ORÐ
„Teymi er tískuorð og mikið notað. Þetta er í raun afbökun á enska orðinu „team“ sem þýðir „lið,“ segir Sigurður Bogi blaðamaður í hugleiðingu dagsins:
„En af hverju teymi? Má ekki frekar nota íslensk orð og segja hópur, flokkur, sveit og svo framvegis. Teymi er hallærislegt orð.“
JÓLAÁLFUR SÁÁ FYRIR BÖRNIN
Sala á Jólaálfi SÁÁ stendur yfir frá 3. til 7 desember og er tekjum af sölunni ætlað að styðja við sálfræðiþjónustu barna hjá samtökunum. Sálfræðiþjónusta SÁÁ er fyrir börn 8-18 ára sem alast upp við fíknsjúkdóm á heimilinu.
–
Mikil eftirspurn er eftir þjónustunni, sem SÁÁ niðurgreiðir með sjálfsaflafé. Árlega sinnir SAÁ um 200 börnum auk þess að veita foreldrum og fjölskyldum fræðslu og stuðning.
Með sálfræðiþjónustunni hjálpar SÁÁ börnunum til að takast á við erfiðar tilfinningar, skömm, reiði, áhyggjur og vanmátt sem fylgir því að fullorðinn á heimilinu glími við fíknsjúkdóminn.
–
Börnin fá fræðslu við hæfi um fíknsjúkdóminn og leiðir til að vinna með kvíða og tilfinningar sem tengjast því að alast upp við slíkar aðstæður. Viðtölin miða að því að styrkja
sjálfsmynd barnanna og stuðla í leiðinni að forvörnum enda geta börnin sjálf verið í hættu að þróa með sér fíknsjúkdóminn
UPPLÝSINGAÓREIÐAN ER LÝÐRÆÐISLEG
„Upplýsingaóreiða er mjög lýðræðislegt fyrirbæri, öndverðan við lokað þjóðfélag með einni útvarps- og sjónvarpsráð og flokksblöðum,“ segir Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður sem hrærst hefur í fjölmiðlum í áratugi og veit hvað hann syngur:
„Upplýsingaóreiða er hugtak sem er skilgreint sem vandamál, en ég tel að svo sé ekki. Stjórnvöld og þeir sem eiga mikið undir geta vissulega ekki haldið einu algildum sannleika að almenningi, sbr. að nú getur fólk leitað sér upplýsinga í ýmsum gagnalindum netsins og hefur líka vettvang til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Það er alveg prýðilegt. Hver lítur sínum augum á silfrið, eins og þar stendur.“
ÁSDÍS RÁN MEÐ HERRA LÍBANON
Það var stæll á ísdrottningunni Ásdísi Rán í gærkvöldi í Búlgaríu:
„Heiður að ganga til liðs við dómnefnd ungfrú Búlgaríu 2025 ásamt vinnufélaga mínum herra Líbanon. Fallegt kvöld fagnandi hæfileikum, þokka og stíl.“

