Ármann Reynisson rithöfundur og athafnaskáld er 74 ára í dag. Hann hefur víða litið við á lífsleiðinni, ekki farið troðnar slóðir og því fær hann óskalag með Frank Sinatra – My Way:
FACEBOOK LOKAR Á EINAR STEINGRÍMSSON
Lokað hefur verið fyrir aðgang Einars Steingrímssonar stærðfræðings að Facebook. Einar hefur verið einn ötulasti þátttakandiinn í samafélagsumræðunni á Facebook hér á landi og látið sér fátt óviðkomandi.
Hann sendir lesendum sínum skilaboð í gengum Facebooksíðu konu sinnar, Evu Hauksdóttur, og segir:
„Hæ, þetta er Einar Steingrímsson sem skrifar. Facebook lokaði skyndilega á mig, og auðvitað engar skýringar (fyrir utan þessa þvælu um „Community Standards“ og „Cyber Security“). Ég er búinn að kvarta, en hver veit hvort hlustað verður á það. Þetta þýðir líka að það er ekki hægt að hafa samband við gegnum Messenger.“
SKEMMTILEG JÓLASKREYTING
Þessi aðventuskreyting er frumlega og auðveld í gerð. Tilvalið í ávaxtaskálina.
VALA SPARAR 100% MEÐ ÞVÍ AÐ KAUPA EKKERT – ÚTVARPSMAÐUR REKINN
Kristín Vala Ragnarsdóttir fyrrum prófessor í sjálfbærni og stjórnarmaður í Landvernd og Landsvirkjun sparar 100% með því að kaupa ekkert í því kaupæði sem rennur á þjóðina á þessum árstíma.
Elísabet Brekkan fjölmiðlakona er á sama máli:

„Það er þessi kaupsýki og tryllingur sem öllu ræður og ekki hægt að kveikja á neinni útvarpsrás án þess að blaðskellandi auglýsingar dynji á manni. Á einni útvarpsstöð í Bandaríkjunum var útvarpsmaður sem hugðist kenna hlustendum sínum bæn…sem hann og gerði og var hún svo hljóðandi: „Góði guð ekki láta mig kaupa neitt í dag.“ Viðkomandi var rekinn korteri seinna.“
JÓLAGJÖF GOLFARANS
Jólagjöf golfarans er sérmerkt golfkúla frá golfkulur.is:
„Sérmerktu þínar golfkúlur eða gefðu persónulega gjöf. Í okkar einfalda hönnunartóli geturðu sett upp þína sérmerkingu, nafn/texta í svörtum lit. Verðið innifelur merkingu og lágmarkspöntun er aðeins 1 kassi.“
Á klassísku jólagjafaverði – 10 þúsund kall með 20% jólaafslætti.
AF HVERJU ER PLÚS Á VEGGNUM?
„Af hverju er plús á veggnum'“ spurði fimm ára stúlka í jólaguðsþjónustu í Laugarneskirkju í gær.
PÍRATAFORINGJAR ÚR EFRI LÖGUM REYKJAVÍKURBORGAR
Í kjöri til formanns Pírata voru 4 og allt starfsmenn í efri lögum hjá Reykjavíkurborg en ein dró framboðið til baka og formaður og varaformaður voru kjörnir úr starfsmannahópnum.
SIF SIGMARS (47)
Sif Sigmarsdóttir, stjarna íslenska jólabókaflóðsins 2025, er afmælisbarn dagsins (47). Hún fær óskalagið Que Sera, Sera – það verður og fer sem fer.
ÍSLENSKUR LJÓSMYNDARI MYNDAR DAUÐALESTINA Í ÚKRAÍNU



