„Heilu lestarfarmarnir með þúsundum af líkum af úkraínskum hermönnum og almennum borgurum renna einstaka sinnum í hlað á leynilegum stað í Úkraínu. Ólafur Steinar Gestsson og Frederik Tillitz komust á snoðir um staðinn þegar einn lestarfarmurinn var að renna í hlað og var boðið inn,“ segir Kristín Ólafsdóttir fyrrum starfsmaður Norrænun ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn en hún er móðir Ólafs Steinars ljósmyndara sem tók myndirnar fyrir Politiken sem birtir þær í dag.
–

„Inn í heim sem einkenndist af yfirþyrmandi líklykt og örmagna réttarmeinafræðingum sem höfðu oftar en ekki úr afar litlu að moða. Á meðan bíða örvæntingarfullir aðstandendur á milli vonar og ótta og þverrandi úthald. Myndir og texti birtast á forsiðu Politiken í dag og á forsíðu kálfsins Politiken Søndag.“
–








